Bikarslagur hjá 2. flokk karla í dag

Fótbolti
Bikarslagur hjá 2. flokk karla í dag
Strákarnir gerðu fína ferð suður um síðustu helgi

2. flokkur karla hefur leik í Bikarkeppni KSÍ í dag þegar strákarnir taka á móti Völsung á KA-vellinum klukkan 19:15. Leikurinn er liður í 32-liða úrslitum keppninnar og eru strákarnir staðráðnir í að fara langt í keppninni í sumar og hvetjum við alla sem geta til að mæta á leik kvöldsins.

Eins og síðustu ár teflir KA fram liði ásamt Dalvík, Reyni og Magna en þetta er gert svo strákar sem fara á lán til þessara félaga í meistaraflokk geti áfram leikið með 2. flokk.

Strákarnir hófu keppni í sumar um síðustu helgi en A-liðið leikur í efstu deild og gerði 1-1 jafntefli við KR/KV á laugardaginn og síðan tapaðist leikurinn gegn Haukum/KÁ 3-2 á sunnudeginum.

B-lið strákanna leikur í efstu deild B-liða og þeir unnu frábæran 2-8 sigur á KR/KV á laugardeginum og svo annan stórsigur á sunnudeginum er þeir unnu 2-6 sigur á Haukum/KÁ.

Næstu leikir í deildarkeppninni hjá strákunum er A-liðið fær Fylki í heimsókn á sunnudaginn kl. 16:00 og í kjölfarið mætast B-lið félaganna kl. 18:00.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is