Harley Willard framlengir út 2025

Fótbolti
Harley Willard framlengir út 2025
Haddi og Harley handsala samninginn góða

Harley Willard skrifaði í dag undir nýjan tveggja ára samning við knattspyrnudeild KA og er nú samningsbundinn út sumarið 2025. Eru þetta afar góðar fréttir enda kom Harley sterkur inn í lið KA á nýliðnu tímabili.

Harley sem er 26 ára gamall framherji frá Skotlandi lék 32 leiki með KA á nýliðnu sumri og gerði í þeim 6 mörk, þar af eitt í Evrópu. Hann kom uppúr akademíu Arsenal á sínum tíma og lék svo síðar meir með yngriliðum Southampton.

Hann kom loks til Íslands árið 2019 og lék með Víking Ólafsvík í þrjú sumur, 2019-2021 og var meðal annars valinn í lið ársins í Lengjudeildinni. Með Víkingum lék hann 68 leiki í deild og bikar og gerði í þeim alls 36 mörk. Í kjölfarið gekk hann í raðir Þórsara þar sem hann lék 24 leiki og gerði í þeim 15 mörk.

Eins og áður segir eru það afar jákvæðar fréttir að Harley hafi framlengt samning sinn en hann hefur fallið afar vel inn í hópinn og sýnt frábæran karakter í gulu og bláu treyjunni.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is