Iðunn Rán æfði með U17 ára landsliðinu

Fótbolti

Iðunn Rán Gunnarsdóttir stóð í ströngu með U17 ára landsliði Íslands í knattspyrnu á dögunum. Stelpurnar komu saman til æfinga í Skessunni og léku svo æfingaleik gegn liði Vals á Origo vellinum. U17 ára liðið fór þar með góðan 4-2 sigur af hólmi.

Iðunn hefur verið fastamaður í hópnum að undanförnu og stóð að vanda vel fyrir sínu. Magnús Örn Helgason er þjálfari liðsins en næsta verkefni er önnur umferð undankeppni EM 2022 en dregið verður í riðla í desember mánuði.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is