Ívar Örn framlengir út 2026!

Fótbolti

Ívar Örn Árnason skrifaði í dag undir nýjan tveggja ára samning við knattspyrnudeild KA og er nú samningsbundinn félaginu út árið 2026. Þetta eru gífurlega jákvæðar fréttir enda hefur Ívar verið í algjöru lykilhlutverki í Bestudeildarliði KA undanfarin ár.

Ívar er 27 ára gamall og hefur verið einn besti miðvörður Bestu deildarinnar undanfarin ár en ekki nóg með að vera frábær varnarmaður er Ívar magnaður karakter sem gefst aldrei upp sem drífur liðsfélaga sína áfram. Ívar er uppalinn hjá KA og alltaf tilbúinn að gefa sig allan fyrir félagið og þá var faðir hans, Árni Freysteinsson, leikmaður í Íslandsmeistaraliði KA sumarið 1989.


Ívar lék sína fyrstu meistaraflokksleiki fyrir KA sumarið 2015. Hér fagnar hann sigri á nágrönnum okkar í Þór með þáverandi fyrirliða liðsins, Jóhanni Helgasyni.

Ívar náði stórum áfanga síðasta sumar er hann lék sinn 100. leik fyrir KA en leikirnir eru nú orðnir 121 talsins. Þrátt fyrir að spila sem miðvörður í hjarta varnarinnar fór hann fyrir markaskorun liðsins í bikarævintýri síðasta sumars er hann gerði þrjú mörk á leið KA í fyrsta bikarúrslitaleik félagsins síðan sumarið 2004.

Það eru gríðarlega jákvæðar fregnir að við höldum Ívari Erni áfram innan okkar raða og verður áfram spennandi að fylgjast með okkar manni í gulu treyjunni á komandi árum.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is