Jonathan Hendrickx gengur til liðs við KA

Fótbolti
Jonathan Hendrickx gengur til liðs við KA
Bjóðum Jonathan velkominn í KA!

Knattspyrnudeild KA samdi í dag við Belgann Jonathan Hendrickx. Jonathan er 27 ára varnarmaður sem kemur til liðs KA frá Lommel í Belgíu.

Jonathan þekkir vel til á Íslandi eftir að hafa spilað 98 leiki á Íslandi með FH og Breiðablik og skorað í þeim leikjum 3 mörk. Jonathan mun verða mikill styrkur fyrir KA liðið sem ætlar sér stóra hluti í sumar undir stjórn Arnars Grétarssonar.

Jonathan er væntanlegur til landsins í vikunni ásamt félaga sínum Sebastiaan Brebels sem samdi við KA á dögunum. Það verður gaman að sjá þennan öfluga leikmann í KA-búningnum á komandi tímabili og bjóðum við hann hjartanlega velkominn norður.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is