KA upphitun fyrir bikarúrslitaleikinn

Fótbolti

Stærsti leikur ársins er á laugardaginn þegar KA og Víkingur mætast í úrslitaleik Mjólkurbikarsins. KA er að leika til úrslita í fjórða skiptið í sögunni og í fyrsta skiptið frá árinu 2004. Það er því heldur betur spenna í loftinu og ljóst að enginn stuðningsmaður ætti að láta þessa veislu framhjá sér fara.

Við verðum með magnaða KA upphitun í nýju Laugardalshöllinni fyrir leik þar sem drykkir verða til sölu ásamt matvögnum frá Gastro Truck og Tacoson. Þá munu þeir Jón Heiðar og Jón Þór halda uppi stuðinu með skemmtilegri dagskrá.

Ekki missa af stærsta leik sumarsins og þeirri mögnuðu KA upplifun í kringum leikinn. Tryggðu þér miða strax á tix.is, áfram KA!

https://tix.is/is/buyingflow/tickets/16107/


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is