Kjarnafæðismótið hefst um helgina (leikjaplan)

Fótbolti
Kjarnafæðismótið hefst um helgina (leikjaplan)
Spennandi mót framundan (mynd: Sævar Geir)

Kjarnafæðismótið í knattspyrnu hefst um helgina en þá mætast KA2 og Þór í Boganum á sunnudag klukkan 13:15. Mótið í ár hefur aldrei verið stærra en alls taka átján lið þátt í mótinu í þremur deildum en KA teflir fram þremur liðum í ár í karlaflokki. Leikið verður í Boganum.

Þá verður Þór/KA sem og Hamrarnir með í kvennaflokki en í fyrsta skiptið verður leikið í kvennaflokki á mótinu og er það gríðarlega ánægjulegt skref. Alls eru skráð fimm lið til leiks hjá konunum en liðin eru 13 í karlaflokki, sjö í A deild og sex í B deild. KDN, Knattspyrnudómarafélag Norðurlands, heldur utan um mótið rétt eins og undanfarin ár.

KA sigraði mótið í fyrra eftir 2-1 sigur á Þór í hreinum úrslitaleik í lokaumferðinni. Að þessu sinni eru Þór, Magni, Völsungur, Dalvík/Reynir, Leiknir Fáskrúðsfirði og KA2 keppinautar liðsins í A deildinni.

Þrjú lið mæta alla leið frá Austurlandi til að taka þátt í mótinu. Áðurnefndir Leiknismenn taka þátt í A deild Karla en einnig tekur Huginn/Höttur þátt í B deildinni. Að auki tekur Fjarðabyggð/Leiknir/Höttur þátt í A deild Kvenna.

Fimm leikir munu fara fram fyrir jól en síðan mun verða leikið þétt í janúar og fram í byrjun febrúar áður en aðrar keppnir hefjast á vegum KSÍ.

Fyrsti leikur aðalliðs KA á mótinu er laugardaginn 14. desember klukkan 15:15 er strákarnir mæta Völsung. Þór/KA hefur einnig leik gegn Völsung en sá leikur fer fram 5. janúar. Annars er skipting liðanna niður í deildir með þessum hætti:

A-deild karla: Dalvík/Reynir, KA, KA2, Leiknir F, Magni, Völsungur, Þór

B-deild karla: KA3, Huginn/Höttur, KF, Samherjar, Tindastóll, Þór2

A-deild kvenna: Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir, Hamrarnir, Tindastóll, Völsungur, Þór/KA

Riðill Dags Tími Heimalið - Gestalið
A 8.des 13:15 Þór - KA2
B 13.des 21:15 Samherjar - Þór2
A 14.des 15:15 KA - Völsungur
A 15.des 13:15 Þór - Dalvík/Reynir
A 18.des 20:45 KA - KA2
A 19.des 20:30 Magni - Dalvík/Reynir
KVK 3.jan 20:15 Hamrarnir - Tindastóll
A 4.jan 15:15 KA2 - Magni
B 4.jan 17:15 KA3 - Huginn/Höttur
A 4.jan 19:15 Dalvík/Reynir - Völsungur
A 5.jan 13:15 Þór - Leiknir F.
KVK 5.jan 15:15 Þór/KA - Völsungur
B 5.jan 18:15 Þór2 - Tindastóll
B 5.jan 20:15 KF - Samherjar
A 10.jan 19:15 KA - Magni
B 10.jan 21:15 Þór2 - KF
A 11.jan 17:15 Dalvík/Reynir - Leiknir F.
KVK 11.jan 19:15 Völsungur - Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir F.
A 12.jan 13:15 Þór - Völsungur
KVK 12.jan 15:15 Tindastóll - Þór/KA
B 12.jan 18:15 Huginn/Höttur - Tindastóll
A 15.jan 17:30 Þór - Magni
B 17.jan 21:15 KF - Huginn/Höttur
A 18.jan 15:15 KA - Leiknir F.
A 18.jan 13:00 KA2 - Völsungur
KVK 18.jan 17:15 Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir F. - Tindastóll
KVK 19.jan 15:15 Þór/KA - Hamrarnir
B 19.jan 18:15 Samherjar - Tindastóll
B 22.jan 20:45 KA3 - Samherjar
KVK 24.jan 20:15 Hamrarnir - Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir F.
A 25.jan 15:15 KA - Dalvík/Reynir
A 25.jan 17:15 Leiknir F. - Magni
B 25.jan 19:15 Tindastóll - KF
KVK 26.jan 18:15 Tindastóll - Völsungur
B 29.jan 20:45 Þór2 - KA3
KVK 31.jan 20:15 Völsungur - Hamrarnir
A 1.feb 15:15 KA - Þór
A 1.feb 17:15 Völsungur - Leiknir F.
B 1.feb 19:15 Huginn/Höttur - Samherjar
KVK 2.feb 15:15 Fjarðabyggð/Höttur/Leiknir F. - Þór/KA
A 2.feb 18:15 KA2 - Dalvík/Reynir
B 5.feb 20:45 KF - KA3
B 8.feb 18:15 Þór2 - Huginn/Höttur
B 8.feb 20:15 Tindastóll - KA3
A 9.feb 18:15 KA2 - Leiknir F.
A 9.feb 20:15 Völsungur - Magni


Leikur KA2 og Völsungs þann 18. janúar verður spilaður á Húsavíkurvelli


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is