Knattspyrnudeild KA semur við Macron

Fótbolti

Knattspyrnudeild KA og Macron á Íslandi hafa gert með sér samstarfssamning til næstu ára. Macron er ítalskur íþróttavöruframleiðandi sem hefur verið í örum vexti á undanförnum árum. Vörur og þjónusta Macron verða kynntar félagsmönnum KA á næstunni.

Næsta keppnistreyja er í hönnunarferli og fer í sölu á nýju ári. Fljótlega verða sett í loftið kynningartilboð á vörum sem verða tilbúnar til afhendingar fyrir jól.

Við erum afar ánægð með samninginn en Handknattleiksdeild KA hefur verið með búninga og fatnað frá Macron undanfarið ár og samstarfið gengið afar vel.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is