Markaveisla í sigri KA á Grindavík

Almennt | Fótbolti
Markaveisla í sigri KA á Grindavík
Mynd - Egill Bjarni Friðjónsson

KA og Grindavík áttust við í 21. umferð Pepsi deildarinnar. Liðin buðu upp á sannkallaða markaveislu og voru alls skoruð sjö mörk í æsispennandi leik. Þar sem KA hafði betur 4-3.

KA 4 – 3 Grindavík
1 – 0 Hallgrímur Mar Steingrímsson (’6)
2 – 0 Daníel Hafsteinsson (’15) Stoðsending: Hrannar Björn
3 – 0 Sjálfsmark Grindavík (’17) Stoðsending: Daníel
3 – 1 Sam Hewson (’20)
3 – 2 Sam Hewson (’30)
4 – 2 Hallgrímur Mar Steingrímsson (’33)
4 – 3 Sam Hewson (Víti) (’74)

Lið KA:
Aron Elí, Hrannar Björn, Hallgrímur J, Callum, Milan, Daníel, Bjarni Mark, Hallgrímur Mar, Vladimir, Steinþór Freyr og Elfar Árni.

Bekkur:
Rajko, Hjörvar, Ýmir Már, Archange, Frosti, Áki og Viktor Már.

Skiptingar:
Bjarni Mark út – Archange inn (’59)
Steinþór Freyr út – Ýmir Már inn (’75)
Vladimir út – Hjörvar inn (’86)

KA gerði eina breytingu frá jafnteflinu gegn Stjörnunni á miðvikudaginn. Hallgrímur Jónassson kom inn fyrir Aleksandar Trnininc.

KA hóf leikinn af miklum krafti og kom fyrsta mark leiksins eftir aðeins sex mínútur þegar að Hallgrímur Mar átti stórkostlegan sprett upp völlinn og lék á varnarmenn Grindavíkur og skrúfaði boltann framhjá Jajalo í marki Grindavíkur og kom KA yfir 1-0.

Nokkrum mínútum síðar átti Hallgrímur skiptingu yfir á hægri vænginn hjá KA þar sem Hrannar Björn lagði boltann fyrir Daníel Hafsteinsson sem skoraði með þrumuskoti í markið. Vallargestir voru varla búnir að fagna öðru marki KA þegar að Daníel átti laglegan sprett upp völlinn og gaf fyrir markið og varð varnarmaður Grindavíkur fyrir því óláni að skora sjálfsmark. 3-0 fyrir KA eftir aðeins 17 mínútna leik.

Mörkin héldu áfram að koma á færibandi en nú var komið að gestunum í Grindavík. Þá átti Marinó Axel sendingu inn í teig á Sam Hewson sem skoraði framhjá Aroni Elí marki KA og kom Grindavík á bragðið.

Tíu mínútum síðar var Sam Hewson aftur að verki. Þá átti Tamburini fyrirgjöf frá vinstri kantinum sem rataði beint á Hewson sem átti frábært viðstöðulaust skot að marki sem lá í netinu og staðan skyndilega orðin 3-2 og fimm mörk komin á fyrsta hálftíma leiksins.

Markaveislan í fyrri hálfleik var hins vegar hvergi nærri hætt og aðeins þremur mínútum síðar jók KA aftur forystuna. Þá var brotið á Daníel rétt fyrir utan teig Grindavíkur. Hallgrímur Mar tók spyrnuna og skoraði hann með mögnuðu skoti framhjá Jajalo og staðan orðinn 4-2.

Eftir fjórða mark KA róaðist leikurinn loksins aðeins og voru síðustu mínútur fyrri hálfleiksins tíðindalitlar og staðan í hálfleik 4-2 fyrir KA.

Síðari hálfleikur var ekki alveg eins fjörlegur og sá fyrri og voru það gestirnir í Grindavík sem voru hættulegri og áttu nokkrar góðar marktilraunir að marki KA en vörn KA stóðst það alltaf af sér.

Þegar stundarfjórðungur var eftir af leiknum fengu gestirnir í Grindavík vítaspyrnu þegar að Archie braut á Matthíasi Erni leikmanni Grindavíkur innan teigs. Á punktinn fór Sam Hewson og fullkomnaði hann þrennuna sína fyrir Grindavík og staðan 4-3.

Við þetta lifnaði KA liðið aftur til leiks og fór að sækja meira á mark gestana en inn vildi boltinn ekki. Ýmir Már átti besta færi KA þegar Hallgrímur Mar og Elfar Árni áttu flottan samleik sem lauk með því að boltinn datt fyrir Ými í algjöru dauðafæri en hann skaut rétt framhjá markinu.

Gestirnir í Grindavík náðu ekki jöfnunarmarkinu í lokin og 4-3 sigur KA því staðreynd. Liðið lék frábæran sóknarleik í dag og var fyrri hálfleikurinn bráðskemmtilegur fyrir áhorfendur og jákvætt fyrir KA liðið að sigla inn sigri í síðast heimaleik Túfa með liðið en hann var hylltur af stuðningsmönnum KA að leik loknum.

Nivea KA-maður leiksins: Hallgrímur Mar Steingrímsson (Skoraði tvö glæsileg mörk og var allt í öllu í sóknarleik KA í dag. Fyrsta markið var einkar glæsilegt og aukaspyrnu markið ekki síðra.)

Lokaleikur tímabilsins er næstkomandi helgi þegar að KA sækir Breiðablik heim í Kópavoginn. Er sá leikur á laugardaginn og hefst hann kl. 14:00. Áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is