Myndaveisla frá veislunni í gær

Fótbolti
Myndaveisla frá veislunni í gær
Gleðin var allsráðandi í gær (mynd: Þórir Tryggva)

Það ríkti mikil gleði á föstudagsframsögu KA í gærkvöldi þegar knattspyrnudeild KA tilkynnti um komu Almarrs Ormarssonar, Hauks Heiðars Haukssonar, Andra Fannars Stefánssonar og Alexanders Groven. Þá framlengdi Callum Williams samningi sínum við félagið að auki. Tómas Þór Þórðarson hélt svo ansi skemmtilega tölu sem sló í gegn á meðan gestir gæddu sér á úrvalsgrillkjöti.

Þá undirrituðu knattspyrnudeild og Höldur undir nýjan samstarfssamning en Höldur hefur verið sterkur bakhjarl deildarinnar í fjölmörg ár.

Rúmlega 100 manns sóttu samkomuna sem sýnir vel þann góða félagsanda sem ríkir hjá félaginu. Þórir Tryggvason ljósmyndari var á svæðinu og hægt er að sjá myndir hans frá kvöldinu með því að smella á myndina hér fyrir neðan.


Smelltu á myndina til að sjá fleiri myndir frá kvöldinu


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is