Sveinn Margeir valinn í U21 landsliðið

Fótbolti

Sveinn Margeir Hauksson er í æfingahóp U21 árs landsliðs Íslands í knattspyrnu sem æfir dagana 1.-3. júní næstkomandi. Sveinn Margeir sem er 19 ára gamall kom af krafti inn í meistaraflokkslið KA á síðasta tímabili og á svo sannarlega framtíðina fyrir sér.

Framundan hjá U21 er undankeppni EM 2023 en fyrstu leikir liðsins eru gegn Hvíta Rússlandi 2. september og heimaleikur gegn Grikklandi þann 7. september.

Við óskum Sveini innilega til hamingju með valið sem og góðs gengis á komandi æfingum.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is