Þór/KA tekur á móti Fylki

Fótbolti
Þór/KA tekur á móti Fylki
Berglind er klár í slaginn!

Baráttan heldur áfram í Pepsi Max deild kvenna í kvöld þegar Þór/KA tekur á móti Fylki á Þórsvelli klukkan 18:00. Stelpurnar unnu tvo frábæra sigra í fyrstu tveimur leikjum sumarsins en hafa tapað síðustu þremur leikjum og eru staðráðnar í að koma sér aftur á beinu brautina.

Gestirnir úr Árbænum eru hinsvegar á miklu skriði og eru í 3. sæti deildarinnar með 11 stig og eru ósigraðar það sem af er deildinni. Það er því ljóst að stelpurnar þurfa á þínum stuðning að halda til að sigla inn þremur stigum í kvöld.

Fyrir þá sem ekki komast á leikinn verður hann í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport þannig að það er um að gera að fylgjast vel með gangi mála, áfram Þór/KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is