Golfmót KA er í dag! - 1 pláss laust

Almennt

Það er komin mikil eftirvænting fyrir Golfmóti KA sem fer fram í dag á Jaðarsvelli. Mótið hefst klukkan 17:30 og því mikilvægt að menn mæti tímanlega til að halda plani. Léttleikinn verður í fyrirrúmi þannig að allir geta tekið þátt þó vissulega verði hart barist um sigur á mótinu.

Athugið að vegna forfalla er laust fyrir einn á mótið eins og staðan er núna og það er bara fyrstur kemur fyrstur fær. Þannig að ef þú hefur áhuga á að taka þátt í mótinu skaltu skrá þig strax!

Mótsgjaldið er 7.500 krónur og aðeins er pláss fyrir 52 keppendur. Það er því um að gera að hafa hraðar hendur og skrá sig til leiks en skráning fer fram í netfanginu agust@ka.is.

Texas scramble reglur verða á mótinu og spilaðar verða níu holur. Að móti loknu verður glæsileg grillveisla og lokahóf þar sem hin ýmsu verðlaun verða veitt.

Einnig er hægt að kaupa stakan miða í grillveisluna og lokahófið fyrir 4.000 krónur. Bókun á miða á lokahófið er í gegnum agust@ka.is.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is