Skráning á 2. námskeið Leikjaskóla KA

Almennt

Annað námskeið leikjaskóla KA hefst á mánudaginn (24. júní) og hvetjum við ykkur eindregið til að drífa í skráningu á námskeiðið ef það er eftir. Tímabilið er 24. júní til 5. júlí og fer það fram í Íþróttahöllinni. Það er gert þar sem undirbúningur fyrir N1 mót KA verður í fullum gangi sem og mótið sjálft.

Skólinn er opinn frá 7:45-12:15 og er að venju fjölbreytt dagskrá ásamt mikið af frjálsum leik. Skólinn er hugsaður fyrir börn á aldrinum 6-12 ára. Þeir sem eru í 1. og 2. bekk hafa tækifæri til þess að vera í leikjaskólanum frá 7:45-12:15, borða síðan nesti og fara beint á fótboltaæfingar sem hefjast 13:00-14:15! 

Verð fyrir hvert námskeið er 6.000 kr.

Sú nýjung er á í ár að öll skráning fer fram í gegnum vefinn ka.felog.is - þar er í boði að skrá sig í Leikjaskólann 2019 og ganga verður frá skráningu og greiðslu þar í gegn!

Athugið að ekki verður lengur hægt að fylla út upplýsingablað í KA-heimilinu og greiða þar. Ath að vandræði eru að greiða með kreditkorti um þessar mundir en það ætti að vera komið í lag í lok þessarar viku eða upphafi næstu.

Mikilvægt er síðan að mæta með kvittun eða skjáskot af kvittun þegar barnið kemur í fyrsta sinn í leikjaskólann. 

Börnin eiga að hafa með sér nesti og föt til útiveru þegar þau mæta í Leikjaskólann

Nánari upplýsingar veitir Siguróli á siguroli@ka.is 


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is