Jón Smári öflugur á haustmóti LSÍ

Lyftingar

Jón Smári Hanson keppti á sínu fyrsta móti í ólympískum lyftingum um helgina og stóð sig með mikilli príði. Hann fékk 5 gildar lyftur af 6 mögulegum og sló persónulegt met í jafnhendingu þegar hann lyfti 102 kg.

Jón keppti á haustmóti LSÍ undir merkjum KA og varð þannig fyrsti keppandi lyftingadeildar KA. Við erum afskaplega stolt af Jóni og óskum honum til hamingju með frumraun sína á keppnispallinum.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is