Jóna og Nökkvi íþróttafólk KA 2022

Almennt | Fótbolti | Handbolti | Júdó | Blak | Lyftingar
Jóna og Nökkvi íþróttafólk KA 2022
Frábærir fulltrúar KA (mynd: Þórir Tryggva)

KA fagnaði 95 ára afmæli sínu við veglega athöfn í Menningarhúsinu Hofi í gær. KA fólk fjölmennti á afmælisfögnuðinn en tæplega 300 manns mættu og þurfti því að opna salinn í Hofi upp á gátt til að bregðast við fjöldanum!

Farið var yfir viðburðarríkt ár og þeir einstaklingar og lið sem hafa skarað framúr í starfi félagsins voru heiðruð. Alls voru sex öflugar íþróttakonur og sex íþróttakarlar tilnefnd til íþróttakonu og íþróttakarls KA fyrir árið 2022.

Íþróttakona KA - tilnefningar

Íþróttakona KA 2022 - Jóna Margrét Arnarsdóttir

Jóna Margrét er þrátt fyrir ungan aldur aðal uppspilari meistaraflokks kvenna hjá KA og á síðasta tímabili varð hún Deildar-, Bikar og Íslandsmeistari með liðinu. Jóna tók við fyrirliða hlutverki liðsins seinnihluta tímabilsins og í lok tímabilsins var Jóna valin besti uppspilari úrvalsdeildar BLÍ ásamt því að vera með næst flest stig úr uppgjöf.

Í sumar var Jóna valin í A landsliðið þegar það tók þátt í undankeppni Evrópumóts, auk þess var hún valin í U21 árs landsliðið þegar það tók þátt í Evrópukeppni smáþjóða og undankeppni smáþjóða í maí. Í Evrópukeppni smáþjóða lenti liðið í 2. sæti. Einnig var hún valin í U19 ára landsliðið þegar það tók þátt á Norðurevrópumóti nú í haust og spilaði hún þar sem aðal uppspilari liðsins. Í lok móts var hún valin mikilvægasti leikmaður íslenska liðsins.


Eiríkur S. Jóhannsson formaður KA ásamt mæðrum Jónu og Nökkva þeim Kristínu Vilhjálmsdóttur og Hugrúnu Felixdóttur

Íþróttakarl KA - tilnefningar

Íþróttakarl KA 2022 - Nökkvi Þeyr Þórisson

Nökkvi Þeyr sló heldur betur í gegn á árinu 2022 en hann blómstraði í KA-liðinu í sumar, skoraði hvorki meira né minna en 17 mörk í 20 leikjum í deildinni og hélt sama hætti í bikarævintýri liðsins einnig. Hann endaði sem markahæsti leikmaður ársins þrátt fyrir að missa af síðustu 7 leikjum tímabilsins eftir að draumur hans um atvinnumensku rættist er hann gékk til liðs við KV Beerschot í Belgíu í byrjun september.

Nökkvi lagði gríðarlega mikla aukavinnu á sig á keppnistímabilinu sem skilað sér vel inn á vellinum og í lok tímabilsins var hann valinn í lið ársins hjá öllum fjölmiðlum sem deildinni sjálfri. Nökkvi var markahæsti leikmaðurinn, besti sóknarmaðurinn og að endingu var hann líka valinn besti leikmaður deildarinnar bæði af sérfræðingum sem og leikmönnum og þjálfurum deildarinnar. Nökkvi hefur síðan haldið áfram að blómstra á haustmánuðum í Belgiu þar sem hann spilar alla leiki og hefur haldið áfram að standa sig frábærlega. Sannarlega frábært ár hjá þessum öfluga leikmanni.

Önnur í kjöri íþróttakonu KA varð Rut Arnfjörð Jónsdóttur handknattleikskona og þriðja í kjörinu var Valdís Kapitola Þorvarðardóttir blakkona. Einnig voru Margrét Árnadóttir knattspyrnukona, Edda Ósk Tómasdóttir júdókona og Rakel Sara Elvarsdóttir handknattleikskona tilnefndar.

Annar í kjöri íþróttakarls KA var Óðinn Þór Ríkharðsson handknattleiksmaður og þriðji í kjörinu var Ívar Örn Árnason knattspyrnumaður. Einnig voru Alex Cambray Orrason lyftingamaður, Gylfi Rúnar Edduson júdókappi og Miguel Mateo Castrillo blakmaður tilnefndir.

Þórir Tryggvason ljósmyndari var á svæðinu og myndaði herlegheitin í bak og fyrir. Við kunnum honum bestu þakkir fyrir framtakið en myndir hans er hægt að skoða með því að smella á myndina fyrir neðan.


Smelltu á myndina til að skoða myndir Þóris frá afmælisfögnuðinum

Þá heiðraði KA fjölmarga sjálfboðaliða fyrir þeirra framlag til félagsins á undanförnum árum enda ómetanlegur hluti af starfi félagsins. Vegna Covid hefur ekki verið hægt að heiðra þá aðila sem hafa átt að fá merki félagsins undanfarin ár og voru merkin því afhent á afmælinu í gær.

Á 93. ára afmæli KA fengu þau Andri Fannar Stefánsson, Anton Orri Sigurbjörnsson, Arna Sif Ásgrímsdóttir, Brynja Möller, Garðar Stefán Nikulás Sigurgeirsson, Gígja Guðnadóttir, Hallgrímur Jónasson, Harpa Jóhannsdóttir, Heiðar Jónsson, Helena Kristín Gunnarsdóttir, Inga Heinesen, Kristín Vilhjálmsdóttir, Sigtryggur Sigtryggsson og Þorbjörg Jóhannsdóttir bronsmerki KA. Auk þess fékk Miguel Mateo Castrillo silfurmerki KA.

Á 94 ára afmæli KA fengu þau Aldís Ásta Heimisdóttir, Almar Þorvaldsson, Anna Marý Jónsdóttir, Anna Þyrí Halldórsdóttir, Arinbjörn Þórarinsson, Arna Valgerður Erlingsdóttir, Árni Rúnar Magnússon, Birkir Freyr Elvarsson, Bjarki Viðar Garðarsson, Edda Ósk Tómasdóttir, Einar Sigtryggsson, Elmar Dan Sigþórsson, Gauti Reynisson, Guðrún Una Jónsdóttir, Halldór Hermann Jónsson, Hermann Torfi Björgólfsson, Hildur Lilja Jónsdóttir, Hulda Bryndís Tryggvadóttir, Inga Vala Magnúsdóttir, Jóhann Rúnar Sigurðsson, Jón Hrannar Einarsson, Júlía Sóley Björnsdóttir, Kristinn Agnar Stefánsson, Kristín Aðalheiður Jóhannsdóttir, Linda Björk Jóhannsdóttir, Markus Gustafsson, Matea Lonac, Ólöf Maren Bjarnadóttir, Pétur Ingi Haraldsson, Rakel Sara Elvarsdóttir, Rut Arnfjörð Jónsdóttir, Sólveig Lára Kristjánsdóttir, Sólveig Tryggvadóttir, Sunna Guðrún Pétursdóttir, Sunna Katrín Hreinsdóttir, Telma Lísa Elmarsdóttir, Thelma Kristjánsdóttir, Unnur Ómarsdóttir, Þorvaldur Þorsteinsson og Þórlaug Þorfinnsdóttir bronsmerki KA.

Loks fengu þau Alex Cambray Orrason, Anna Rósa Halldórsdóttir, Arnar Þ. Jóhannesson, Ágúst Ingi Axelsson, Árni Björn Þórarinsson, Ásgeir Blöndal, Baldur Ingi Karlsson, Bergljót Þrastardóttir, Bergmann Guðmundsson, Birkir Örn Jónsson, Bjarni Freyr Guðmundsson, Bjarni Jónasson, Bjarni Snær Friðriksson, Björgvin Máni Friðriksson, Egill Bjarni Friðjónsson, Ellert Örn Erlingsson, Elvar Jónsteinsson, Fjóla Kristjánsdóttir, Gígja Ívarsdóttir, Graham Littlewood, Guðmundur Freyr Hermannsson, Hafdís M. Tryggvadóttir, Helga Björg Ingvadóttir, Hilda Jana Gísladóttir, Hlynur Már Erlingsson, Hlynur Örn Ásgeirsson, Ingólfur Jóhannsson, Johann Jonsson Gentry, Jón Egill Gíslason, Jón Viðar Þorvaldsson, Klara Fanney Stefánsdóttir, Kristín B Jónsdóttir, Kristján Sturluson, Magnús Hilmar Felixson, Ólafur Aron Pétursson, Ólafur Örn Þorgrímsson, Patrik Freyr Guðmundsson, Ragnar Bjarnason, Reginn Unason, Reynir Hjálmarsson, Sævar Örn Hafsteinsson, Sigmundur Magnússon, Sindri Kristjánsson, Sindri Skúlason, Smári Víglundsson, Snorri Kristjánsson, Steinar Óli Gunnarsson, Tryggvi Björnsson, Valgerður Jónsdóttir og Zakir Jón Gasanov bronsmerki KA á 95 ára afmælinu í gær.

Þá fengu þau Aðalbjörn Hannesson, Arna Hrönn Skúladóttir, Arnar Már Sigurðsson, Atli Þór Ragnarsson, Elmar Dan Sigþórsson, Sigurður Einar Tryggvason, Ragnar Már Þorgrímsson og Þórður Sigmundur Sigmundsson silfurmerki KA fyrir þeirra ómetanlega framlag til félagsins.

Að lokum var Ingvar Már Gíslason gerður að heiðursfélaga KA og er hann hér ásamt Vigni Má Vignissyni varaformanni KA og Eiríki S. Jóhannssyni formanni KA. Ingvar gegndi formannsstöðu KA árin 2018 til 2022 og þar áður var hann varaformaður félagsins.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is