Frábær árangur KA í 5. og 6. flokki í ár

Handbolti
Frábær árangur KA í 5. og 6. flokki í ár
Eldra ár 5. flokks vann silfur á Íslandsmótinu

Handboltavetrinum lauk um helgina er 5. og 6. flokkur léku sína síðustu leiki. Það má með sanni segja að bjart sé framundan hjá okkur í KA en alls eigum við fjögur lið sem enduðu í verðlaunasæti á Íslandsmótinu.

Í 5. flokki karla enduðu bæði eldra og yngra ár í 2. sæti á Íslandsmótinu en þá er litið yfir heildarárangur vetrarins. Þjálfarar strákanna eru þeir Stefán Árnason og Arnór Ísak Haddsson.


Yngra ár 5. flokks karla vann silfur í ár

Í 6. flokki kvenna varð eldra ár KA/Þórs í 2. sæti á Íslandsmótinu og eldra ár 6. flokks karla endaði í 3. sæti. Þjálfarar stelpnanna er Gunnar Líndal Sigurðsson og Siguróli Magni Sigurðsson og Dagur Gautason stýra strákunum.


Smelltu á myndina til að skoða myndir Hannesar frá móti helgarinnar

Lokamóti vetrarins hjá eldra ári 6. flokks fór fram á Akureyri um helgina og var vægast sagt líf og fjör í KA-Heimilinu og Íþróttahöllinni. Hannes Pétursson ljósmyndari var á svæðinu og má sjá myndir hans frá mótinu með því að smella á myndina hér fyrir ofan.


Stelpurnar á eldra ári 6. flokks unnu silfur á Íslandsmótinu í ár

Árangur okkar liða á móti helgarinnar var til fyrirmyndar en kvennamegin vann KA/Þór 1 efstu deild, KA/Þór 2 vann 3. deild og KA/Þór 3 vann 4. deildina. KA 2 vann 2. deildina karlamegin og því ljóst að KA verður með tvö lið í efstu deild á næsta móti en aðeins fimm lið leika í efstu deild.


Strákarnir á eldra ári 6. flokks náðu bronsi


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is