Lydía og Bergrós á HM með U18

Handbolti

KA/Þór á tvo fulltrúa í lokahóp U18 ára landsliðs kvenna í handbolta sem tekur þátt á Heimsmeistaramótinu í Kína dagana 14.-25. ágúst næstkomandi en þetta eru þær Lydía Gunnþórsdóttir og Bergrós Ásta Guðmundsdóttir. Auk þess er Sif Hallgrímsdóttir valin til vara.

Þær Lydía og Bergrós eru báðar í lykilhlutverki í meistaraflokksliði KA/Þórs og ljóst að afar spennandi ævintýri er framundan hjá stelpunum að spila á HM og það í Kína. Fyrir liggur að stelpurnar leika æfingaleiki við Færeyjar dagana 1. og 2. júní næstkomandi en þeir leikir fara fram á Íslandi.

Við óskum stelpunum okkar til hamingju með valið sem og góðs gengis í þessu spennandi verkefni.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is