Ott Varik framlengir um tvö ár

Handbolti
Ott Varik framlengir um tvö ár
Haddur og Ott sáttir með tíðindi dagsins

Ott Varik hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við handknattleiksdeild KA og eru það afar jákvæðar fréttir. Ott gekk í raðir KA fyrir veturinn og kom gríðarlega öflugur inn í liðið og fór heldur betur fyrir sínu í hægra horninu er hann gerði 115 mörk í 27 leikjum og var meðal markahæstu manna Olísdeildarinnar.

Ott sem er 33 ára gamall er landsliðsmaður Eistlands og hefur komið ákaflega vel inn í félagið okkar. Hann er mikill baráttujaxl sem drífur menn með sér og er ákaflega teknískur í slúttum auk þess að hann er alltaf fyrsti maður fram í hraðaupphlaupum.

Ekki nóg með að standa fyrir sínu inni á vellinum þá hefur hann lagt sig fram utan vallar en hann var meðal annars með vel heppnaðar aukaæfingar fyrir metnaðarfulla iðkendur. Þá hefur hann lagt sig fram við að læra íslensku og er orðinn ansi liðtækur við að tjá sig.

Það eru ákaflega jákvæðar fréttir að við höldum Ott áfram innan okkar raða og hlökkum við til að sjá áfram til hans í gula og bláa búningnum.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is