Fréttir

KA/Þór taka á móti toppliðið Vals á þriðjudaginn klukkan 19:00

Það verður enginn smáleikur í KA heimilinu á þriðjudagskvöldið þegar stelpurnar í KA/Þór taka á móti stórliði Vals í N1 deild kvenna. Valskonur hafa ekki tapað leik það sem af er tímabilsins og eru fyrir vikið heldur óárennilegar.

3. flokkur karla: Stórleikur gegn Þór á miðvikudag!

Næstkomandi miðvikudag verður stórleikur í KA heimilinu klukkan 19:15. Þá eigast við KA1 - Þór í derby leik. KA1 liðinu hefur gengið mjög vel það sem af er vetri og ætla svo sannarlega að halda áfram á þeirri braut.

Frábær ferð 5. flokks stráka á Selfoss

Strákarnir í 5 flokki fóru til Selfoss um helgina og spiluðu þar í 3. deild. Ekki er hægt að segja annað en strákarnir hafi lagt sig 100% fram því að þeir unnu alla sína leiki sannfærandi. Til hamingju með árangurinn strákar!

Flottur sigur KA/Þór á HK í dag

KA/Þór vann fjögurra marka sigur á HK, 27:23, er liðin mættust í KA- heimilinu í dag í N1- deild kvenna í handbolta.  Við byggjum hér á frásögn Vikudags frá leiknum.

Breyttir tíma á leikjum í KA-Heimilinu

Vegna góðs gengis strákanna okkar í Austurríki hefur allt leikjaplan helgarinnar riðlast en HSÍ hefur bannað að leikir fara fram á meðan leikir Íslendinga fara fram.

Leikur KA/Þór og HK hefst klukkan 15:30 á laugardaginn

Nú hefur verið ákveðið að leikur KA/Þór og HK í N1-deild kvenna á laugardaginn hefjist klukkan 15:30 eða skömmu eftir að leik Íslands og Frakka í undanúrslitum EM. Menn geta því horft á leikinn í sjónvarpinu og haldið svo handboltanum áfram með stelpunum en leikurinn er gríðarlega mikilvægur í baráttunni í neðri hluta deildarinnar. KA/Þór er í 7. sætinu en HK í því 8. þar sem bæði lið hafa fimm stig.

Leikur hjá 3. flokki karla á föstudagskvöldið

Á föstudagskvöldið klukkan 20:45 tekur KA1 á móti ÍR.  KA1 hefur byrjað árið mjög vel og til að mynda unnið alla þrjá leiki sína til þessa. Þessari sigurgöngu ætla strákarnir að halda áfram og hvetja alla til að koma og horfa á. Strákarnir eru núna með 15 stig eftir 9 leiki á meðan toppliðið er með 17 stig eftir 10 leiki þannig að þeir eiga alla möguleika í toppslagnum.

Orðsending frá þjálfara 5. og 6. flokks kvenna

Foreldrar stúlkna í 6. og 5. flokki kvenna eru minntir á miðann sem sendur var heim með stúlkunum í dag og varðar suðurferðina um helgina. Á honum eru foreldra beðnir að hafa samband við þjálfara ef eitthvað er óljóst og kemur ekki fram á sama miða. Sindri Kristjánsson sindrik@gmail.com GSM: 868 7854 Einvarður Jóhannsson einvardur@akmennt.is GSM: 898 0305

6. fl. drengja eldra ár: Ferð til Reykjavíkur föstudaginn 29. janúar

Næstkomandi helgi fer fram þriðja umferð Íslandsmóts 6. flokks drengja eldra árs. Mótið fer fram í Hafnarfirði og eru það FH-ingar sem sjá um mótshald. Niðurröðun mótsins hefur legið fyrir í vikutíma en við KA menn höfum mótmælt harðlega niðurröðun í deildir og ekki er komin niðurstaða í þau mál.

Stórsigur KA/Þór gegn Víkingi

Stelpurnar í KA/Þór unnu öruggan sigur á botnliði Víkings þegar liðin léku í N1 – deildinni. Stelpurnar tóku leikinn í sínar hendur strax frá upphafi og skoruðu til dæmis fyrstu fimm mörk leiksins og litu ekki um öxl eftir það.