10 frá KA og KA/Þór í Hæfileikamótun HSÍ

Handbolti
10 frá KA og KA/Þór í Hæfileikamótun HSÍ
Strákarnir eru klárir í slaginn!

KA og KA/Þór eiga alls 10 fulltrúa í Hæfileikamótun HSÍ sem fer fram 19.-21. mars næstkomandi. Alls voru fimm strákar og fimm stelpur úr okkar röðum valin en öll eru þau fædd árið 2007. Alls munu hóparnir æfa fjórum sinnum yfir helgina í Víkinni og Ásvöllum.

Hjá strákunum voru þeir Aron Daði Stefánsson, Jóhann Mikael Ingólfsson, Leó Friðriksson, Úlfar Örn Guðbjargarson og Þórir Hrafn Ellertsson valdir en hópnum stýrir Halldór Jóhann Sigfússon fyrrum leikmaður KA.

Hjá stelpunum voru þær Arna Dögg Kristinsdóttir, Auður Bergrún Snorradóttir, Elena Soffía Ómarsdóttir, Kristín Andrea Hinriksdóttir og Kristín Birta Líndal Gunnarsdóttir valdar en Rakel Dögg Bragadóttir stýrir stúlknahópnum.

Bæði strákarnir og stelpurnar léku á móti um helgina en strákarnir hömpuðu sigri í efstu deild og stelpurnar enduðu í 2. sæti í efstu deild kvennamegin. Það er því mikill kraftur í krökkunum okkar og óskum við þeim til hamingju með valið sem og góðs gengis á komandi æfingum.

Hæfileikamótunin hjá HSÍ hefur verið mikil lyftistöng fyrir afreksstarfið í handboltanum og er klárlega mikilvæg gulrót fyrir unga og öfluga iðkendur sem ætla sér alla leið.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is