Guðjón Valur bætist í hóp goðsagna handboltans

Handbolti

Guðjón Valur Sigurðsson var á dögunum vígður inn í goðsagnarhöll Handknattleiksdeildar KA en hann er styrktur inn af Eyjabita á Grenivík. Á myndinni má sjá strigann af Guðjóni sem er komin upp í KA-Heimilinu þar sem hann tekur sér stað við hlið Patreks Jóhannessonar.

Guðjón Valur varð Deildarmeistari með KA árið 2001 en hann var valinn besti leikmaður Íslandsmótsins bæði árin 2000 og 2001 auk þess að vera valinn besti leikmaður úrslitakeppninnar árið 2001. Einnig var hann valinn besti leikmaður KA árin 2000 og 2001. Í dag er Guðjón Valur markahæsti landsliðsmaður í sögu handboltans.


Jöfnunarmarkið gegn Afturelding í undanúrslitum Íslandsmótsins er líklega frægasta augnablik Guðjóns í KA treyjunni

Goðsagnarhöllin er framtakið sem virkar þannig að fyrirtæki geta haft samband við deildina og keypt goðsögn úr handboltastarfinu og fá þar með merki sitt á strigann með myndinni af leikmanninum auk texta yfir hans helstu afrek með KA.

Á næstu vikum munum við bæta fleiri goðsögnum við en hafir þú eða þitt fyrirtæki áhuga á að taka þátt í þessu skemmtilega framtaki skaltu endilega hafa samband í netfangið agust@ka.is. Þetta er kjörin auglýsing enda strigarnir ansi sýnilegir.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is