Háspennu lífshættusigur hjá KA U gegn Fjölni U

Handbolti
Háspennu lífshættusigur hjá KA U gegn Fjölni U
Ótrúlegur endir á spennuþrungnum leik

Ungmennalið KA tók á móti ungmennaliði Fjölnis í Grill 66 deild karla í KA-Heimilinu í dag. Fyrir leikinn höfðu strákarnir tapað síðustu þremur leikjum sínum og voru því staðráðnir í að koma sér aftur á beinu brautina. Gestirnir voru hinsvegar á botninum með 2 stig og ólmir í að laga sína stöðu.

Fjölnisliðið byrjaði leikinn betur og komust snemma í 1-4, lítill taktur var í sóknarleik okkar liðs og gestirnir gengu á lagið. Strákarnir skoruðu ekki í rúmar sjö mínútur en komust loks í gang og jöfnuðu í 4-4. Í kjölfarið var jafnt á öllum tölum og gríðarleg spenna í leiknum sem var ansi skemmtilegur.

Hálfleikstölur voru 13-14 fyrir Fjölni og rétt eins og í upphafi fyrri hálfleiks byrjuðu þeir betur í þeim síðari. Þeir gerðu fyrstu þrjú mörk hálfleiksins og komust í 13-17 áður en KA liðið kom sér aftur á blað sem tók rúmar átta mínútur í þetta skiptið. Aftur fundu strákarnir þó taktinn og jöfnuðu metin í 18-18.

Alveg eins og í fyrri hálfleik tók nú við kafli þar sem jafnt var á öllum tölum og mátti vart sjá hvoru megin sigurinn myndi enda. Á lokamínútunni voru gestirnir með boltann í stöðunni 25-25 en skot þeirra fór framhjá. Í kjölfarið braust Sigþór Árni Heimisson í gegn og skoraði gríðarlega mikilvægt mark og enn um 10 sekúndur eftir af leiknum. Fjölnisliðið kom sér í dauðafæri á línunni en skotið fór í slánna og yfir og KA liðið slapp með skrekkinn.

Gríðarlega torsóttur 26-25 sigur því í höfn og strákarnir því komnir aftur á beinu brautina. 

Arnór Ísak Haddsson fór fyrir KA U í dag og var markahæstur með 7 mörk, þar af eitt úr vítakasti. Þorri Starrason, Sigþór Árni Heimisson, Einar Birgir Stefánsson og Einar Logi Friðjónsson gerðu allir 4 mörk, Sigþór Gunnar Jónsson 2 og Jón Heiðar Sigurðsson 1 mark. Svavar Ingi Sigmundsson varði 7 skot í markinu.

Næsti leikur liðsins er föstudaginn 29. nóvember er strákarnir sækja ungmennalið Vals heim en Valsliðið er í 2.-3. sæti deildarinnar með 11 stig en KA U er með 8 stig.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is