Birgir Baldvinsson semur út 2025

Fótbolti
Birgir Baldvinsson semur út 2025
Stórkostlegar fréttir!

Birgir Baldvinsson hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við knattspyrnudeild KA og er nú samningsbundinn út sumarið 2025. Þetta eru stórkostlegar fréttir enda hefur hann vakið verðskuldaða athygli fyrir framgöngu sína á nýliðnu sumri.

Birgir er 21 árs vinstri bakvörður sem er uppalinn hjá KA en hann lék sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir félagið sumarið 2018. Undanfarin þrjú sumur hefur hann hinsvegar leikið á láni hjá Leiknismönnum og var hann algjör lykilmaður í liði Leiknis sem lék í Bestu deildinni í sumar.

Það var eðlilega mikill áhugi á Birgi eftir sumarið og erum við afar ánægð með að halda honum innan okkar raða og alveg klárt að hann mun spila stórt hlutverk á næstunni í okkar öfluga liði.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is