Flýtilyklar
Guðjón Pétur Lýðsson semur við KA
12.11.2018
Fótbolti
KA og Guðjón Pétur náðu samkomulagi í dag og skrifar Guðjón undir 3 ára samning við félagið. Guðjón kemur frá Val þar sem hann hefur verið Bikar- og Íslandsmeistari síðustu ár. Guðjón Pétur er 31 árs og hefur spilað 178 leiki í efstu deild og skorað í þeim 44 mörk.
Við bjóðum Guðjón Pétur hjartanlega velkominn í KA og hlökkum til að sjá hann í gulu í sumar.