KA mætir Fjölni í Lengjubikarnum í dag

Fótbolti
KA mætir Fjölni í Lengjubikarnum í dag
Torfi mætir sínu gamla liði í dag

KA leikur lokaleik sinn í riðli 3 í Lengjubikarnum í knattspyrnu í dag er liðið tekur á móti Fjölni í Boganum klukkan 16:30. KA er nú þegar búið að tryggja sér sigur í riðlinum enda hefur liðið unnið alla leiki sína á mótinu til þessa og mun mæta ÍA í undanúrslitum mótsins.

Leikurinn í dag er því í raun formsatriði en það er farið að styttast allsvakalega í að Pepsi Max deildin hefjist og ljóst að allir leikir fram að sumri eru mikilvægir í undirbúningnum og klárt að strákarnir mæta með einbeitinguna á fullu í leikinn.

Tveir leikmenn KA léku með Fjölni á síðustu leiktíð en það eru þeir Almarr Ormarsson og Torfi Tímoteus Gunnarsson og verður gaman að sjá þá mæta sínu gamla liði. Við hvetjum að sjálfsögðu alla sem geta til að mæta á leikinn í dag en fyrir þá sem ekki komast verður leikurinn í beinni á KA-TV.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is