KA vann Argentísku deildina á N1 mótinu

Fótbolti
KA vann Argentísku deildina á N1 mótinu
Glæsilegir fulltrúar KA í KA 1 (mynd: EBF)

33. N1 móti KA lauk um helgina en um er að ræða stærsta mótið hingað til. Alls var keppt í 8 deildum, keppendur um 2.000, 204 lið frá 49 félögum og alls 888 leikir sem gera 26.640 mínútur af fótbolta. Mótið heppnaðist mjög vel og ríkti mikil gleði á mótinu og ekki skemmdi fyrir að veðrið var mjög gott þegar leið á mótið.

Strákarnir í KA 1 gerðu sér lítið fyrir og unnu sigur í Argentísku deildinni og er þetta í fyrsta skiptið síðan árið 1991 að KA vinnur sigur í efstu deild mótsins. Við óskum strákunum hjartanlega til hamingju með þennan stórkostlega árangur.

KA-TV sýndi alla leikina á velli 8 (N1 völlurinn) sem gera alls 76 leiki í beinni og allir með lýsendum. Hægt er að panta eintak af sjónvarpsleikjum mótsins með því að hafa samband í netfanginu agust@ka.is.

Myndband mótsins í ár er unnið af GS Production og má sjá hér fyrir neðan:

 

Hér má sjá yfirlit yfir sigurvegara

Argentíska deildin: KA 1

Brasilíska deildin: 07 Rush WI

Chile deildin: Snæfellsnes 1

Danska deildin: Grótta 2

Enska deildin: Breiðablik 8

Franska deildin: Valur 6

Gríska deildin: Stjarnan 7

Hollenska deildin: KFR 3

Stuðboltar mótsins: Þróttur Reykjavík

Háttvísisverðlaun Sjóvá: Sindri/Neisti

Sveinsbikarinn: Vestri (háttvísi innan sem utan vallar)

Skotfastasti leikmaður: Andri Valur Finnbogason - KA 1 (84 km/klst)

Menn leiksins í úrslitaleik Argentísku deildarinnar:
Óskar Arnór Einarsson – KA 1
Alexander - Valur 1

Menn leiksins í úrslitaleik Brasilísku deildarinnar:
Frosti Björn Björnsson – Stjarnan 2
Emmeth – Rush USA

Menn leiksins í úrslitaleik Chile deildarinnar:
ÍBV – Morgan Goði Garner
Snæfellsnes – Asmer Begic

Menn leiksins í úrslitaleik Dönsku deildarinnar:
Sveinbjörn Jóhannsson – Stjarnan
Gunnar Róbertsson – Grótta

Menn leiksins í úrslitaleik Ensku deildarinnar:
Baldur – Breiðablik
Máni – Stjarnan

Menn leiksins í úrslitaleik Frönsku deildarinnar:
Anton Máni – Valur
Aron Matus – KA

Menn leiksins í úrslitaleik Grísku deildarinnar:
Viktor Kári Jóhannsson – Stjarnan
Sigurjón Gunnarsson – Þróttur R

Menn leiksins í úrslitaleik Hollensku deildarinnar:
Ívar Ilur Birkisson – KFR 3
Óðinn Andri Gunnarsson – Stjarnan 8


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  staff@ka.is