30.09.2011
Getraunastarf KA hefst á ný eftir sumarfrí. Fyrirkomulagið verður með öðru sniði en áður eða
deildarkeppni þar sem allir þátttakendur mætast innbyrðis í einfaldri eða tvöfaldri umferð.
Samstarfsaðilar okkar í vetur eru fjölmargir og meðal vinninga má nefna borgarferð í vetur (flug, bíll, gisting, matur og leikhús fyrir tvo) sem
eru fyrstu verðlaun fyrir áramót. Einnig eru veitt verðlaun fyrir 2. og 3. sætið bæði fyrir og eftir áramót sem og fyrir besta seðil
ársins og bestan samanlagðan árangur í keppnunum tveimur.
Heildarverðmæti vinninga er tæp hálf milljón króna.
29.09.2011
Það er óhætt að segja að það verði stórleikur í Höllinni í dag þegar Íslandsmeistararnir úr FH
mæta til leiks. Viðureignir liðanna frá síðasta tímabili voru margar og klárlega hápunktar tímabilsins.
Akureyrarliðið fór vel af stað í fyrsta leik síðastliðinn mánudag þegar liðið vann góðan útisigur á Aftureldingu
í Mosfellsbænum. FH ingar hins vegar töpuðu illa fyrir Fram á sínum heimavelli og koma væntanlega dýróðir í þennan leik,
staðráðnir í að komast á sigurbraut á ný.
28.09.2011
Nú þegar eru farnar að berast fyrirspurnir um hvenær hið vinsæla N1-mót KA í knattspyrnu í 5. aldursflokki drengja verði á næsta
ári. Það skal hér með upplýst að mótið verður haldið dagana 4. til 7. júlí 2012 á KA-svæðinu. Mótið
hefst að vanda á miðvikudegi - 4. júlí - og því lýkur laugardaginn 7. júlí. Nánari upplýsingar verða birtar á
heimasíðu mótsins - sjá hnapp hér efst á síðunni lengst til hægri.
28.09.2011
Kvennaklúbbur KA, sem samanstendur af hressum og skemmtilegum konum úr félaginu, lét til sín taka í KA heimilinu um s.l. helgi. Eftir miklar
framkvæmdir á gólfinu í íþróttahúsinu hafði ryk smogið um allt og því ekki vanþörf á að
þrífa aðeins. Þær mættu árla dags á laugardeginum og hófu að þrífa allt hátt og látt. Gríðarlega
stórt bikarasafn er í KA heimilinu og tóku þær það m.a. alveg í gegn, ásamt því að rífa niður gardínur,
taka úr skápum og skúffum og þrífa o.s.frv.
28.09.2011
Í Morgunblaðinu í dag er kynning á liði KA/Þór sem leikur í vetur í N1 deild kvenna. M.a. er rætt við þjálfara
liðsins Guðlaug Arnarsson. Þess má geta að stelpurnar sitja hjá í fyrstu umferð deildarinnar þar sem Fylkir dró lið sitt út
úr keppninni á síðustu stundu.
Fyrsti leikur liðsins verður 8. október en það er útileikur gegn HK en þann 15. október verður fyrsti heimaleikurinn þegar FH stúlkur
koma í heimsókn.
Hér á eftir er kynningin úr Morgunblaðinu.
27.09.2011
Kvennalið Þórs/KA spilar á morgun, miðvikudaginn, 27. september, kl. 16.15 við þýska liðið 1. FFC Turbine Potsdam á
Þórsvelli og eru allir hvattir til að fjölmenna á völlinn og styðja við bakið á stelpunum.
26.09.2011
Sigurbjörg Níelsdóttir, sem flestir þekktu undir gælunafninu Bögga, lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri að kvöldi
sunnudagsins 25. september, á 54. aldursári.
26.09.2011
Svíinn Boris Lumbana kom til KA sl. vor að láni frá sænska úrvalsdeildarliðinu
Örebro þar sem meðal annars þjálfarinn Gunnlaugur Jónsson lék um tíma. Heimasíðan sló á þráðinn til Boris og spurði hann út í sumarið. “Sumarið var
mjög gott, en ég get ekki sagt það sama um veðrið! Það var frekar kalt en í heildina litið var sumarið mjög gott,” sagði
Boris.