26.09.2011
KA endaði tímabilið í 8. sæti 1. deildar og er Gunnlaugur Jónsson þjálfari sáttur með seinni
umferðina en KA var með þriðja besta árangur allra liða í seinni umferð. “Ég er mjög sáttur við stígandann í
liðinu, í seinni umferðinni er liðið með þriðja besta árangur í deildinni, aðeins toppliðin tvö, ÍA og Selfoss, eru með
betri árangur. Við byrjum mótið mjög vel en frá og með 4. umferð kom mikil lægð þar sem aðeins vannst einn sigur í 9
leikjum,” sagði Gunnlaugur í samtali við ka-sport.is.
25.09.2011
Steingrímur Örn Eiðsson er næstur á dagskrá í 100 leikja klúbb félagsins en það má með sanni segja að hann hafi
rétt slefað inní þennan góða klúbb. Steini er uppalinn á Ólafsfirði og lék með Leiftri áður en að hann gekk til
liðs við KA, 4 Apríl 1997.
21.09.2011
Á laugardaginn ætla nokkrir góðir KA menn að taka til hendinni í félagsheimili KA og þrífa þar allt hátt og lágt og eru
öllum KA - mönnum og konum velkomið að mæta í þó ekki nema smá stund og hjálpa til. Boðið verður upp á
glóðvolgt kaffi svo allir endilega að mæta og hjálpa til. Byrjað verður klukkan 11 og er áætlað að vinnu verði lokið um 14.
Allir mega mæta og þurfa ekki að vera allan tímann
21.09.2011
Um síðustu helgi tók meistaraflokkur kvenna þátt í Errea-mótinu á Seltjarnarnesi. Mótið var æfingamót en auk
KA/Þór tóku Grótta, HK, ÍBV og þátt í mótinu. Meðfylgjandi eru úrslit mótsins.
21.09.2011
Getraunastarf KA hefst á ný eftir sumarfrí. Fyrirkomulagið verður með öðru sniði en áður eða deildarkeppni þar
sem allir þátttakendur mætast innbyrðis í einfaldri eða tvöfaldri umferð.
20.09.2011
Haukur Heiðar Hauksson, fyrirliði KA, var valinn í lið ársins í 1. deild Íslandsmótsins á Fotbolti.net, en niðurstaða
vefsíðunnar var kunngjörð síðdegis í dag.
20.09.2011
Lokatölur leiks Þórs og KA sem fram fór á Þórsvelli í dag voru 3 - 1 fyrir Þór. Þórsarar byrjuðu leikinn af krafti og
komust í 2 - 0 í fyrri hálfleik og leiddu þannig fram að 70. mínútu. Þá minnkuðu KA-menn muninn 2 - 1. Mikil barátta var í
okkar mönnum en þrátt fyrir það komust Þórsarar í 3 - 1 stuttu eftir mark okkar manna og þannig lyktaði leiknum. Með sigri eða
jafntefli hefði KA tryggt sætið í A-deildinni á næsta ári. Hins vegar fór það ekki þannig í þetta skipti og leikur 2.
flokkur KA því í B-deild á næsta ári.
19.09.2011
Það verður örugglega ekkert gefið eftir á Þórsvelli kl. 17.00 á morgun, þriðjudag, þegar 2. flokkur Þórs og KA
mætast í síðasta leik sumarsins í A-deild Íslandsmótsins. Og ekki nóg með að þetta verði Akureyrarslagur með öllu sem
því fylgir, heldur verður þetta væntanlega hreinn úrslitaleikur um hvort liðið fellur úr A-deildinni niður í B-deild á næsta
keppnistímabili.
19.09.2011
Höldur og Hafnyt hafa fjármagnað kaup á vandaðri vog fyrir Júdódeild KA. Eins og flestir vita keppa júdómenn í þyngdarflokkum
og því mikilvægt að hafa löglega vog við mótahald. Nákvæm vog er einnig gríðarlega mikilvæg fyrir allt afreksfólk okkar
á keppnistímabilum.
19.09.2011
Fríða Rún Þórðardóttir næringafræðingur var með fyrirlestur um næringarfræði miðvikudaginn 7. september
síðastliðinn í KA heimilinu fyrir þjálfara, iðkendur og foreldra.