Fréttir

Nýjasti liðsmaður KA er R&B stjarna í Svíþjóð! - Hlustaðu á nýjasta lagið hans hér!

Hinn eiturspræki Svíi Boris Lumbana gekk formlega í raðir KA í gær en hann kemur að láni frá hinu fróma úrvalsdeildarfélagi Örebro. Strákurinn er flottur fótboltamaður, snöggur varnarjaxl. En hann er ekki bara fótboltamaður, o nei, ne,i nei, hann er líka tónlistarmaður og hefur gefið út nokkur lög. Tónlistin sem hann gerir er svokölluð RnB tónlist, en sú stefna tröllríður öllu um þessar mundir og skemmst er að minnast vinsælda hins íslenska Friðriks Dórs í þeim efnum. Heyrst hefur að ónefndir aðilar á Akureyri sem tengjast útvarps- og tónlistarbransanum séu spenntir fyrir Boris og ætli þeir jafnvel að gera eitthvað úr sönghæfileikum hans!

Allar æfingar falla niður á morgun, föstudag

Allar æfingar í KA heimilinu falla niður á morgun föstudaginn 29. apríl vegna Hagnsmótsins sem haldið verður í KA heimilinu. Húsið verður svo lokað 30. apríl og 1. maí.

Boris Lumbana til KA

Sænski varnarmaðurinn Boris Lumbana hefur gengið til liðs við KA og er hann væntanlegur til landsins í dag og mun verða í æfingabúðum með KA-liðinu um helgina.

Leikjaplan Greifamóts KA laugardaginn 30. apríl

Laugardaginn 30. apríl stendur yngriflokkastarf KA fyrir árlegu Greifamóti í Boganum fyrir yngstu krakkana, 8. flokk, 7. flokk kk og kvk og 6. flokk kvk. Vel á þriðja hundrað krakkar eru skráðir til leiks.

Þórður Arnar og Sigurjón Fannar framlengja

Í dag skrifuðu knattspyrnumennirnir Þórður Arnar Þórðarson og Sigurjón Fannar Sigurðsson undir nýja tveggja ára samninga við KA.

Vorönn félagsins lýkur

Síðustu tímar hjá laugardagshópum

Greifamót KA laugardaginn 30. apríl - æfingar allra flokka falla niður í Boganum

Þriðja og síðasta Greifamót KA í vetur verður haldið í Boganum nk. laugardag, 30. apríl, og af þeim sökum falla niður æfingar allra flokka í Boganum þann dag. Mótið stendur frá kl. 10 til ca. 15.

KA heimilið lokað um páskana

KA heimilið er lokað sem hér segir: 21. apríl Skírdagur 22. apríl Föstudagurinn langi 23. apríl Laugardagur 24. apríl Páskadagur 25. apríl Annar í páskum Æfingar hefjast þriðjudaginn 26. apríl samkvæt æfingatöflu. Gleðilega páska! - Framkvæmdastjóri KA

4. flokkur kvenna úr leik í 8 liða úrslitum

4. flokkur kvenna átti strembið verkefni fyrir höndum, bikarmeistarar Selfoss á Selfossi síðasta sunnudagskvöld.  Stelpurnar hafa verið á miklu skriði í vetur og framfarirnar hreint út sagt lygilegar. Á dögunum unnu þær 2. deildina og stefndu að sjálfsögðu á að fara alla leið í úrslitakeppninni.