16.06.2011
Nú er það frágengið að landsliðsmennirnir Arnór Atlason, Guðjón Valur Sigurðsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson munu
heimsækja handboltaskóla Greifans sem haldinn verður í næstu viku. Þá eru einnig góðar líkur á að Björgvin Páll
Gústafsson komi. Strákarnir okkar ætla að miðla af reynslu sinni og segja krökkunum til á æfingunum.
Skólinn er fyrir alla krakka eldri en 11 ára (fædd 2000).
15.06.2011
KA skreppur í kvöld í heimsókn á Selfoss og mæta þar heimamönnum, leikurinn hefst klukkan 20:00 og allir sem vettlingi geta valdið eru hvattir
til að mæta og sjá KA menn rífa sig upp á nýjan leik. Selfyssingar eru í 2 sæti með 10 stig en KA í 8 með 7 stig þannig
það er stutt á milli og því verður að styðja vel við bakið á liðinu. Bein textalýsing verður á mbl.is í
kvöld svo hægt verður að fylgjast með þar og einnig á facebook síðu KA.
15.06.2011
Jæja nú virkar það! Þjálfarar Arsenalskólans fóru
á mánudag á snjóbretti upp í Hlíðarfjalli, já snjóbretti 13. júní! Kaldhæðnislegt! Bræðurnir Eiki
og Halldór Helgasynir ásamt Gulla Guðmundssyni reyndu að leiðbeina þeim með misjöfnum árangri, uppistaðan er komin á myndband og er
skylduáhorf fyrir hláturtaugarnar.
13.06.2011
Arsenalskólinn fór af stað í dag og fór ég á stjá með myndavélina eftir hádegi og myndaði það sem var að
gerast, afraksturinn má sjá ef smellt er á lesa meira, það kemur samantekt frá öllum dögum skólans
13.06.2011
Skráning á tímabil 2 hjá leikjaskólanum er hafin. Leikjaskólinn er alla virka morgna frá 07:45 til 12:15.Tímabilið er frá
mánudaginum 20. júní til föstudagsins 1. júlí. Frekari upplýsingar í síma 462-3482 og á síðu leikjaskólans!
13.06.2011
Í morgun mættu vel á þriðja hundrað krakkar í KA-heimilið fullir tilhlökkunar til þess að taka þátt í
Arsenalskólanum í knattspyrnu, en þetta er annað árið í röð sem slíkur knattspyrnuskóli er starfræktur á
KA-svæðinu.
12.06.2011
KA fékk dæmdar á sig tvær vítaspyrnur í leiknum gegn Fjölni, sú fyrri var á 20 mínútu eftir brot Hafþórs
Þrastarsonar og var hún réttlætanleg sú seinni kom hins vegar á 63.mínútu og var vægast sagt umdeilanleg, Sigurjón Fannar
brýtur þar á leikmanni Fjölnis UTAN TEIGS! en dómarinn dómarinn dæmir víti og rautt! Endilega segið hvað ykkur finnst um þennan
dóm?
12.06.2011
Jæja afsaka seina ganginn en vegna ferminga og annarra anna hefur ekki verið unnt að setja viðtöl eftir KA Fjölni inn fyrr en núna, Viðtöl við Gulla,
Elvar Pál og Ásmund þjálfara Fjölnis má sjá ef smellt er á lesa meira.
12.06.2011
Margrét Árnadóttir í A-liði 5. flokks KA var valin efnilegasti leikmaðurinn á Pæjumótinu í Eyjum sem lauk í gær.
Margrét er vel að þessari viðurkenningu komin, enda mikið efni á ferð. Hún hefur í vetur æft jöfnum höndum með 5. og 4. flokki KA
og spilað með báðum flokkum. Til hamingju Margrét með viðurkenninguna!
12.06.2011
Það er alltaf gaman að fá þá viðurkenningu að vera prúðasta liðið. Það sýnir góðan liðsanda, kurteisi og
virðingu. Stelpurnar í fimmta flokki KA fengu þessa viðurkenningu á Pæjumótinu í Eyjum sem lauk í gær. Meðfylgjandi mynd var tekin af
öllum stelpunum þegar þær veittu þessari viðurkenningu viðtöku.