Fréttir

Vorsýning Fimak

Laugardaginn 21.maí verður hin árlega vorsýning fimleikafélagsins.Sýningarnar verða að þessu sinni þrjár, kl.11:00, kl.13:00 og kl.15:00.Hópunum er skipt niður á sýningarnar.

Vorsýning Fimak 2011

Laugardaginn 21.maí verður hin árlega vorsýning fimleikafélagsins.Þemað er Frumskógurinn með tilheyrandi hljóðum og verða sýningarnar að þessu sinni þrjár, kl.11:00, kl.

Æfingaleikur: KA 3-0 Magni

KA og Magni léku æfingaleik í kvöld á Hrafnagili, þar sem bæði lið æfa þessa dagana en þetta er nánast eina grassvæðið í Eyjafirði sem er klárt undir fótboltaiðkun. Gulli var þarna að leyfa þeim sem minna hafa spilað að spreyta sig gegn sterkustu mönnum Magna.

Framkvæmdir á Akureyrarvelli í fullum gangi (Myndir)

Framkvæmdir við stúkuna á Akureyrarvelli eru í fullum gangi. Áæltuð verklok á öllu eru í ágúst en stúkan verður orðin góð að innan fyrir fyrsta leikinn sem spilaður verður á vellinum í byrjun júní. Stúkan verður öll hin glæsilegasta að innan, auk þess sem byggt verður við hana. Í viðbyggingunni verður aðstaða fyrir blaðamenn og lyfta fyrir hjólastóla. Við hér á síðunni fylgumst vel með gangi mála í stúkunni, hér er að finna myndir sem voru teknar í dag sem gefa góða mynd af umfangi framkvæmdarinnar.

Beiðni KA um að spila á Þórsvelli hafnað

Á fundi framkvæmdastjórnar Þórs í dag var beiðni knattspyrnudeildar KA um að fá að leika fyrsta heimaleik okkar á Þórsvellinum hafnað. Ástæður sem gefnar eru að völlurinn sé ekki í nógu góðu ásigkomulagi og veðurspá næstu daga sé ekki hagstæð. Í ljósi þessarar niðurstöðu hefur knattspyrnudeild KA nú þegar óskað eftir því við KSÍ að leikurinn fari fram í Boganum nk. föstudagskvöld kl. 19.00. Beðið er ákvörðunar KSÍ í málinu.

Lokahóf yngri flokka handboltans hjá KA

Fimmtudaginn 19/5 kl. 18:00 verður lokahóf yngri flokka handboltans haldið í KA heimilinu.  Veittar verða viðurkenningar, farið í leiki og endað á pizzuveislu.  Allir iðkendur eru hvattir til að mæta og foreldrar og systkini velkomin með. Æfingar hjá yngstu krökkunum hætta eftir lokahóf en eldri flokkar halda áfram í samráði við þjálfara. Sjáumst hress í KA heimilinu! Unglingaráð handknattleiksdeildar KA

Hvar er hann nú/pistill: Þorvaldur Makan

Þá er komið að næsta manni á dagskrá en það er KA-goðsögnin Þorvaldur Makan Sigbjörnsson, mæli með því að allir lesi þennan pistil frá Makan.

Vormót FSÍ 2011 - Úrslit

Vormótið gékk frábærlega og allir sem komu að því voru til fyrirmyndar.Hér koma úrslit frá Vormóti FSÍ sem haldið var á Akureyri.

Þór/KA: Tap í fyrsta heimaleik, stelpur fara á lán til Völsungs

Stelpurnar í Þór/KA léku sinn fyrsta leik á Íslandsmótinu í gær laugardag. Stelpurnar guldu afhroð í leiknum en ÍBV sigraði með 5 mörkum gegn engu. Í samtali við thorsport.is viðurkenndi Viðar Sigurjónsson að þessi úrslit væru niðurlæging.  Hann benti þó á að liðið hafi verið meira með boltann, fengið mun fleiri hornspyrnur og að leikmönnum ÍBV hafi nokkrum sinnum tekist að bjarga á línu. 

Umfjöllun: Leiknir - KA (Myndir)

Það var mikil tilhlökkun í þeim gulu og bláu fyrir deginum í dag enda tæplega sjö mánaða undirbúningstímabili lokið og loksins átti að byrja Íslandsmótið á leik gegn Leikni. KA-menn fengu verðugt verkefni í fyrsta leik en andstæðingarnir úr Breiðholtinu voru hársbreidd frá því að komast upp í úrvalsdeild síðasta haust og er þeim spáð töluvert betra gengi en KA í sumar.