Fréttir

Nágrannaslagur í 3. flokki karla: Þór - KA á föstudaginn

Næstkomandi föstudag munu strákarnir í KA1 mæta Þór í Íþróttahúsi Síðuskóla, leikurinn hefst kl: 16:45 að staðartíma. Viljum við hvetja sem flesta til að koma í Íþróttahús Síðuskóla og horfa á næstu kynslóð handboltamanna á Akureyri.

Takk fyrir okkur!

Innilegar þakkir frá þjálfurum og leikmönnum 6. flokks til unglingaráðs, foreldra og allra þeirra sem störfuðu við Íslandsmótið um síðustu helgi og gerðu það svo glæsilegt og eftirminnilegt sem raun ber vitni. Sjá úrslit leikja og lokastöðu.

Myndir frá leikjum 4. flokks karla og kvenna á laugardaginn

Það var barist á öllum vígstöðvum um helgina og þrátt fyrir að Íslandsmót 6. flokks færi fram í öllum keppnishúsum bæjarins tókst að finna tíma fyrir leiki 4. flokks karla og kvenna á laugardaginn. Þórir Tryggvason er búinn að senda okkur myndir frá leikjunum og er hægt að skoða þær hér.

Íslandsmót 6. flokks karla og kvenna - leikskrá o.fl.

Um helgina stendur mikið til hjá 6. flokki karla og kvenna þegar leikin verður heil umferð á Íslandsmótinu. Það eru KA og Þór sem annast þessa umferð og verður leikið á fimm völlum í KA heimilinu, Íþróttahúsi Síðuskóla og Íþróttahöllinni. Sérstök síða hefur verið sett upp með upplýsingum um mótið. Smellið hér til að skoða allar upplýsingar um mót 6. flokks.

KA/Þór á tvo erfiða leiki um helgina - Sjónvarpsleikur á sunnudaginn

Meistaraflokkur KA/Þór á svo sannarlega erfiða helgi fyrir höndum. Tveir útileikir gegn tveim af toppliðum N1-deildarinnar. Á laugardaginn spila stelpurnar gegn Fram og er sá leikur í Fram húsinu og hefst klukkan 15:00.

Leikur 3. flokks karla gegn ÍR frestað

Leik KA1 gegn ÍR sem var fyrirhugaður á föstudag kl: 21.00 hefur verið frestað um óákveðinn tíma. HSÍ sendi út eftirfarandi skilaboð: Mótanefnd HSÍ hefur ákveðið, að beiðni ÍR, að leikjum ÍR í meistaraflokki til og með 4. flokki sem fram eiga að fara frá og með deginum í dag og fram yfir helgi verður frestað um óákveðinn tíma vegna þess sorglega atburðar sem átti sér stað í gær hjá ÍR. Við KAmenn sendum ÍR-ingum samúðarkveðjur okkar. 

3. flokkur kvenna lék um síðustu helgi í Reykjavík

Stelpurnar í 3. flokk kvenna spiluðu gegn HK stelpum í Fagralundi nú um liðna helgi. Leikurinn var strax á eftir meistaraflokksleiknum og bar hann öll merki þess að í báðum liðum höfðu leikmenn verið að spila leik rétt áður eða í það minnsta búnar að bíða lengi í íþróttahúsinu eftir leiknum. Bæði lið spiluðu frekar undir getu ef eitthvað var en voru þó á svipuðum stað í leiknum.

Foreldrar/forráðamenn 6. flokks kvenna og karla

Það hefur væntanlega ekki farið fram hjá neinum að mikið stendur til um næstu helgi en þá fer fram 2. umferð Íslandsmóts eldra árs. Jafnframt hefur verið valið eitt lið leikmanna af yngra ári til þátttöku til að jafna út riðla á mótinu. Nú liggur fyrir lokaniðurröðun leikja á mótinu og eru foreldrar beðnir um að kynna sér dagskrána vel. Eins og fram kom á foreldrafundi sl. mánudagskvöld munu drengirnir taka virkari þátt í mótinu en áður þegar spilað hefur verið hér á heimavelli. Okkar drengir mega fara í kvöldverð bæði kvöldin, fá frítt í sund og að sjálfsögðu mæta þeir á kvöldvöku á laugardagkvöldið.

Vestmannaeyjarferð 5.flokks karla og kvenna

Foreldrar  krakka í 5. flokki  sem eru að fara til Vestmannaeyja næstkomandi helgi, eru beðnir um að greiða kostnaðinn við ferðina kr. 11.000 inn á banka 0162-05-63299 kt. 450902-2680 og setja kennitölu barns í skýringu. Kveðja, Unglingaráð

Jafntefli hjá KA/Þór í dag í Kópavoginum

KA/Þór sótti stig í Kópavoginn í dag þegar stelpurnar léku gegn HK en liðin skildu jöfn, 26:26, í N1 deild kvenna í Digranesinu í dag. Ásdís Sigurðardóttir 7, Anna Valgerður Erlingsdóttir 6, Emma Sardarsdóttir 4, Martha Hermannsdóttir 4, Guðrún Tryggvadóttir 3, Katrín Viðarsdóttir 2