KA/Þór rótburstaði Aftureldingu (myndir)

Handbolti
KA/Þór rótburstaði Aftureldingu (myndir)
Frábær frammistaða KA/Þórs! (mynd: Jón Óskar)

KA/Þór lék sinn fyrsta heimaleik á árinu um helgina er liðið tók á móti Aftureldingu í Olís deild kvenna. Stelpurnar eru staðráðnar í að næla sér í sæti í úrslitakeppninni í vor en höfðu tapað síðustu fjórum leikjum sínum og þurftu því nauðsynlega að finna taktinn á ný og sækja tvö stig.

Það sást strax frá upphafi að stelpurnar voru klárar í slaginn og að Mosfellingar myndu eiga í vandræðum. Gestirnir gerðu sitt fyrsta mark eftir átta mínútna leik og okkar lið keyrði gjörsamlega yfir leikinn. Staðan var orðin 13-3 eftir um tuttugu mínútur og var sigur KA/Þórs aldrei í hættu.


Smelltu á myndina til að skoða myndir Egils Bjarna Friðjónssonar frá leiknum

Er flautað var til hálfleiks var staðan 18-6 og í raun eina spurningin hversu stór sigurinn yrði. Þrátt fyrir miklar róteringar á okkar liði í síðari hálfleik þá jókst forskotið og að lokum vannst 30-12 stórsigur. Allir leikmenn liðsins sem voru í hóp fengu að spreyta sig og stóðu sig með prýði.

Rakel Sara Elvarsdóttir var valin maður leiksins en hún gerði 8 mörk og var markahæst ásamt Ásdísi Guðmundsdóttur. Katrín Vilhjálmsdóttir gerði 4 mörk, Martha Hermannsdóttir 3, Svala Björk Svavarsdóttir 3, Aldís Ásta Heimisdóttir 2, Kolbrún Gígja Einarsdóttir 1 og Ásdís Sigurðardóttir 1 mark.

Matea Lonac átti stórleik í markinu og varði 19 skot sem gerir 63,3% markvörslu. Ólöf Maren Bjarnadóttir kom svo inn í restina og hélt sama dampi með 2 skot varin sem gerir 66,7% markvörslu!


Smelltu á myndina til að skoða myndir Þóris Tryggvasonar frá leiknum

Gríðarlega flottur sigur hjá stelpunum og ansi mikilvæg tvö stig í hús. Nú er bara að vona að liðið nái að halda sama dampi í næstu leikjum en með sigrinum hoppar liðið upp í 5.-6. sæti deildarinnar og er aðeins tveimur stigum frá úrslitakeppnissæti þegar sjö leikir eru eftir af deildinni.

Næsti leikur er strax á miðvikudaginn er liðið sækir ÍR heim í 8-liða úrslitum Coca-Cola bikarsins en ÍR leikur í deild fyrir neðan og klárt að þetta er stærsti leikur vetrarins fyrir þær. Okkar lið þarf því að vera á tánum til að tryggja sæti sitt í undanúrslitum bikarkeppninnar.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is