KA sækir nýliða Fylkis heim kl. 19:00

Blak
KA sækir nýliða Fylkis heim kl. 19:00
Fúsi og félagar ætla að hefja tímabilið á sigri!

Blakveturinn er farinn af stað og nú er komið að karlaliði KA en KA sækir Fylki heim í fyrstu umferð Mizunodeildar karla klukkan 19:00 í dag. Strákarnir ætla sér stóra hluti í vetur og fyrsta verkefni vetrarins er gegn nýliðum Fylkis.

Þetta verður áhugaverð viðureign og spennandi að sjá hvernig Árbæingar koma til leiks. Í spá fyrirliða og þjálfara deildarinnar var Fylkisliðinu spáð 7. sæti en KA var spáð 4. sætinu.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  handbolti@ka.is