Fréttir

2. flokkur gerði jafntefli við Skagann í fyrsta leik

2. flokkur karla hóf í dag leik á Íslandsmótinu. Strákarnir fóru suður á Akranes og kepptu þar við heimamenn í ÍA og gerðu við þá jafntefli í hörkuleik, 3-3.

Mörkin og tilþrifin úr leiknum gegn ÍR í gær

KA sigraði ÍR í gær 3-0 eins og alþjóð veit, en ég var á staðnum ásamt Frey Baldurssyni og tókum við leikinn upp, ég setti það svo saman í skemmtilegt myndband, eins og sjá má þá hefðu KA getað skorað u.þ.b 5 mörk á fyrstu 10 mínútunum

Umfjöllun, viðtöl og myndir: Frábær sigur gegn ÍR

KA tók á móti ÍR í Boganum í kvöld og fyrir leikinn mátti búast við hörkuleik. Svo ég vitni í spá Páls Viðars Gíslasonar fyrir leikinn segir hún allt sem segja þarf um leikinn: “KA-menn eru með hættulega framherja og þeir verða illviðráðanlegir í þessum leik í Boganum. Þeir vinna þetta örugglega 3-0.” Það er spurning hvaða náðargáfu Palli er gæddur en hann hafði á hárréttu að standa, KA voru illviðráðanlegir í leiknum og unnu mjög svo öruggan 3-0 sigur. Spurning hvort Palli taki við af nafna sínum, kolkrabbanum Páli, sem spáði fyrir um leiki á HM. 

Öruggur sigur á ÍR-ingum

KA sigraði ÍR-inga örugglega með þremur mörkum gegn engu í Boganum í kvöld. KA leiddi í hálfleik með marki Daniel Jason Howell og í þeim síðari skoruðu ÍR-ingar sjálfsmark og Howell bætti síðan við þriðja markinu undir lok leiksins.

KA-maður slær í gegn á netinu! - Ný netstjarna fædd

Ein vinsælasta síða Íslands í dag er heimasíðan FlickMyLife.com. Þar eru settar inn myndir sem teljast furðulegar og gert grín af þeim. KA-menn fengu sínar 15 mínútur af frægð á síðunni í gær en þar birtist mynd af Sigurjóni Fannari, "Sissa", leikmanni meistaraflokks. Þú getur séð dýrðina með því að smella hér. Við óskum Sigurjóni innilega til hamingju með nýfengna frægð og vonum að hún skili honum ferskum á völlinn í kvöld!

Gunnlaugur: Vona að það verði allt vitlaust (myndband)

Heimasíðan tók viðtal við Gunnlaug Jónsson þjálfara KA fyrir leikinn á móti ÍR. Hann vonast eftir að ALLIR KA menn láti sjá sig og geri allt vitlaust í Boganum (ekki slagsmál og læti heldur öskri úr sér hálskirtlana)

Þjáfari ÍR: Við munum leggja allt í sölurnar

Heimasíðan náði í skottið á Guðlaugi Baldurssyni þjálfara ÍR fyrir leikinn í kvöld. “Leikurinn leggst vel í mig. Það er alltaf gaman að koma norður yfir heiðar og heimsækja höfuðstað Norðulands.”

Fjölmennt lokahóf handknattleiksdeildar – fullt af myndum

Fimmtudaginn 19. maí var  haldið árlegt lokahóf yngri flokka handboltans í KA heimilinu.  Að vanda var mikið fjör, farið í leiki, keppt við foreldra í reiptogi, eggjakasti, handbolta o.fl. Veittar voru viðurkenningar og í lokin klassísk pizzuveisla.

Fyrsti heimaleikur í kvöld - KA í úrvalsdeild í umgjörð

Fyrsti heimaleikurinn okkar er í kvöld og þar sem menn vöknuðu upp við hvíta jörð í morgun verður hann leikinn inni í "hlýja" Boganum. Tekin var sú ákvörðun á vördögum að reyna eftir fremsta megni að skapa flotta umgjörð í kringum heimaleiki KA og ætlum við svo sannarlega að vera í úrvalsdeild í þeim efnum.

Kynningarkvöld KA heppnaðist vel (myndir)

Hin árlega kynning á leikmönnum m.fl. karla í knattspyrnu fór fram í kvöld. Gunnlaugur Jónsson þjálfari fór yfir liðið og kynnti áherslurnar fyrir sumarið. Kvöldið var vel sótt af dyggum stuðningsmönnum félagsins. Sævar Sig ljósmyndari var að sjálfsögðu á svæðinu. Myndirnar má sjá hér.