Fréttir

Fréttabréf unglingaráðs handboltans komið út

Unglingaráð handboltans var að gefa út fyrsta fréttabréf haustsins. Þar er fjallað um starfið framundan, fundahöld og keppnisferðir, greint frá æfingagjöldum o.fl.

Dean Martin lætur af störfum

Dean Martin, þjálfari meistaraflokks KA, óskaði í dag eftir því að láta af störfum sem þjálfari og leikmaður hjá KA. Samningur hans við félagið, sem var til þriggja ára, átti að renna út í lok október. Dean Martin hefur í það heila spilað vel á þriðja hundrað leiki fyrir KA, en fyrst kom hann til félagsins sem leikmaður árið 1995 og spilaði þá til ársins 2003. Hann kom síðan aftur til félagsins sem þjálfari og leikmaður árið 2008. Knattspyrnufélag Akureyrar þakkar Dean Martin fyrir mikið og óeigingjarnt starf í þágu félagsins sem þjálfari og leikmaður. Alla tíð hefur hann sem bæði sem leikmaður og þjálfari meistaraflokks og sem yngriflokkaþjálfari hjá KA gefið sig allan í verkefnið og rúmlega það. Fyrir það vill KA þakka af heilum hug um leið og honum og fjölskyldu hans fylgja bestu óskir um farsæld í öllum þeim verkefnum sem bíða á öðrum vettvangi. Stjórn knattspyrnudeildar KA.

Lára á bekknum í metsigri Íslands

KA-stelpan Lára Einarsdóttir er nú stödd í Búlgaríu með U-17 landsliðinu. Þar er liðið að spila í undanriðli Evrópukeppninnar. Mótherjarnir í riðlinum eru Búlgaría, Ítalía og Litháen. Fyrsti leikur liðsins var í dag og fór hann 14-0 fyrir Ísland.

4. flokkur kvenna spilaði um helgina

Stelpurnar í 4. flokk kvenna spiluðu á niðurröðunarmóti Íslandsmótsins nú um helgina.  Stelpurnar spiluðu þrjá leiki og töpuðust tveir af þeim en einn leikur vannst.  Á föstudag spiluðu stelpurnar við lið Fram og fór hann 14-12 fyrir Fram. KA/Þór byrjaði ákaflega illa og komust Fram stelpur í þægilegt forskot. Í síðari hálfleik var allt annað upp á teningnum og minnkuðu KA/Þór stelpur muninn jafnt og þétt og fengu nokkur tækifæri til að jafna leikinn en það gekk ekki upp og eins og áður sagði vann Fram með tveimur mörkum.

Nágrannaslagur á Akureyrarvelli á morgun

Á morgun mætast nágrannaliðin KA og Þór í öðrum flokki karla. Leikurinn verður á Akureyrarvelli klukkan 17:00 og vonandi að sem flestir mæti og fylgist með síðasta leik KA á tímabilinu.  Um er að ræða leik í A deild á Íslandsmótinu. Búist er við hörkuleik enda einn stærsti leikur tímabilsins og Þórsarar eru enn í fallbaráttu og gætu fallið vinni þeir ekki þennan leik.

Síðasti leikur sumarsins á morgun hjá meistaraflokki

Seinasti leikur okkar á þessu keppnistímabili blasir við og fer hann fram á Akranesi.  Þetta sumar flaug framhjá því vissulega er það eins og það hafi verið í fyrradg þegar við fögnumu sigri í fyrsta leik mótsins gegn Þrótti en svona er þetta nú bara eða eins og segir í kvæðinu sem Kristján Jóhannss.  hefur svo gaman af að synga ,,Enginn stöðvar tímans þunga nið” 

Breytingar á æfingatímum handboltans

Það  þurfti að gera nokkrar breytingar á æfingatöflu handboltans sem var birt á dögunum. Gerðar voru breytingar á æfingum 4. flokks stúlkna og drengja, unglingaflokkum karla og kvenna svo og meistaraflokki kvenna. Ný tafla hefur tekið gildi og hvetjum við alla til að kynna sér hana.  Vonandi sjáum við sem flesta, hressa og káta eftir gott sumar, öllum er velkomið að koma og prófa. Fréttabréf um starf vetrarins verður sett inn á síðuna síðar. Smelltu hér til að skoða æfingatöfluna.

Myndir: KA heimilið málað

Það var ekki bara sagðar kjaftasögur um Guðjón Þórðar í vikunni sem leið því nokkrir góðir KA-menn, sem tilheyra Lávarðadeild félagsins, tóku sig nefnilega saman og máluðu KA - heimilið.

KA - Víkingur í dag!

Seinasti heimaleikur okkar á þessu keppnistímabili verður laugardaginn 11 sept. og það eru Víkingar sem koma í heimsókn.

Handboltafréttir / Skómarkaður

Þá er fyrsta  vika handboltatímabilsins liðin og er mæting á æfingar mjög góð, gaman að sjá hvað bæði strákar og stelpur eru áhugasöm og hafa gaman  á æfingum.  Allir krakkar eru velkomnir að koma og prófa.  Í vetur ætlum við að reyna að setja upplýsingar um starfið hér á heimasíðu KA og verður þá vonandi auðveldara að fylgjast með því sem er að gerast  hjá okkur. Nú er einmitt tíminn sem menn eru að velta fyrir sér kaupum á innanhússkóm.  Skórnir frá síðasta vetri orðnir of litlir, þó þeir séu svo til óslitnir og dýrt að kaupa nýja.  Við ætlum því að bjóða upp á skiptimarkað með innanhússkó , næstkomandi laugardag.