30.06.2010
Okkar menn ráðast ekki á garðinn þar sem hann er lægstur á morgun þegar þeir halda til Hafnarfjarðar til þess að leika gegn
Íslandsmeisturum FH í 8 liða úrslitum í VISA bikarkeppni KSI.
30.06.2010
Búið er að gera breytingar á næstu leikjum KA. Bikarleikurinn gegn FH sem var settur upphaflega 11. júlí hefur verið færður á 1.
júlí vegna þátttöku FH í Evrópukeppni.
28.06.2010
Hið árlega N1-mót KA í knattspyrnu fyrir 5. aldursflokk drengja verður haldið hér á KA-svæðinu dagana 30. júní – 3.
júlí. Mótið er nú haldið í 24. skipti og hefur aldrei verið fjölmennara. Í mótinu taka þátt um 1500 strákar og
með þjálfurum og liðsstjórum eru þátttakendur um 1800. Og þegar svo bætist við mikill fjöldi foreldra og annarra aðstandenda er
ljóst að margt verður um manninn á KA-svæðinu næstu daga. Fullyrða má að þetta verður fjölmennasta knattspyrnumót sem til
þessa hefur verið haldið hér á landi.
28.06.2010
Dínó var tekinn í viðtal eftir Leiknisleikinn í gær og má sjá það hér að neðan. Leiknum lauk eins og komið hefur fram
á síðunni 3-0 fyrir heimamönnum en til að lesa nánar um gang leiksins er best að lesa umfjöllun Davíðs Más hér fyrir
neðan.
28.06.2010
Það viðraði vel til knattspyrnuiðkunar í dag á „Ghetto Ground“ eins og Leiknismenn nefna heimavöllinn sinn. Völlurinn í fínu
standi og ágætis mæting í Breiðholtið þrátt fyrir stóran HM dag.
26.06.2010
Heimasíðan heyrði í þjálfara Leiknis og spurði hann út í leik morgundagsins og svo var Dínó einnig spurður út í
leikinn og fleira.
26.06.2010
Næsti viðkomustaður KA verður Leiknisvöllur nk. sunnudag þegar okkar menn mæta heimamönnum í leik sem hefst kl 16.00.
26.06.2010
Annar flokkur á leik í Visa-Bikarnum gegn ÍA á morgun, sunnudag, klukkan 16:00 og búast má við hörkuleik.
KA menn byrjuðu mótið vel en síðan komu þrír tapleikir í röð og ætla strákarnir sér að snúa blaðinu
við.
26.06.2010
KA og Grindavík áttust við í kvöld í 16-lið úrslitum VISA-bikarsins. KA sló út HK í síðustu umferð og þurftu
þeir framlengingu til þess að slá þá út. Í kvöld ákváðu þeir að spila aðeins lengur og taka eina
vítaspyrnukeppni í leiðinni fyrst þeir voru nú komnir til Grindavíkur.
25.06.2010
Búið er að draga í 8-liða úrslit VISA-bikarsins í höfuðstöðvum KSÍ. KA-menn lögðu Grindavík í gær og voru
því í pottinum í dag þegar dregið var.