Fréttir

Fjölskylduhátíð KA í kringum Leiknisleikinn!

Það er nóg um að vera á Akureyri um helgina enda Akureyrarvaka, bæjarhátíð sem haldin er í tilefni afmælis Akureyrarbæjar. Við KA-menn látum ekki okkar eftir liggja og blásum til fjölskylduhátíðar í KA-heimilinu fyrir leik KA og Leiknis R. á laugardaginn.

Umfjöllun: Fjölnir - KA

Það er óhætt að fullyrða að leikur okkar gegn Fjölni sl. laugardag hafið verið koflóttur, fyrri hálfleikur mjög dapur, sá seinni mjög góður.

Fundarboð: 4. fl. karla - Fundur á miðvikudag

Hér er tilkynning til 4. fl. karla í handbolta: Fundur verður haldin í KA - Heimilinu n.k. miðvikudag kl 17:00 í KA - Heimilinu. Það er mjög mikilvægt að allir mæti. Látið fundarboðið berast! Þeir sem ekki sjá sér fært að mæta skulu hafa samband við undirritaðan. Jóhannes Bjarnason GSM: 6623200

Kjarnafæðismótið 2010 24 - 25. september - Skráning hafin

Dagana 24. og 25. september verður Kjarnafæðismótið í handbolta haldið en mótið er ætlað meistaraflokki kvenna. Mótið verður haldið í KA - heimilinu en einnig verður þar haldin grillveisla ásamt verðlaunafhendingu á laugardagskvöldinu. Aðstandendur mótsins eru farnir að taka á móti skráningum. Það er Jóhannes G. Bjarnason, Jói Bjarna, sem veitir frekari upplýsingar og tekur við skráningum í síma 6623200 eða á netfanginu joigb@akmennt.is. Hægt verður að gista í KA - heimilinu og ekkert þáttökugjald verður á mótið.

Helena og Lára í 23 manna hóp U17

Þorlákur Árnason valdi á dögunum 23 stelpur í æfingahóp U17 ára landsliðsins. Þessar stelpur munu keppa um sæti í 18 manna hóp sem mun spila í forkeppni EM í Búlgaríu í lok september. Hópurinn mun æfa 16. - 17. september en eftir það verður endanlegur hópur valinn.

Tap í Grafarvogi í dag - Nánari umfjöllun væntanleg

Okkar menn heimsóttu Fjölni í Grafarvoginn fyrr í dag. Leikurinn byrjaði ekki vel fyrir okkur og sóttu Fjölnismenn mun harðar en við allan fyrri hálfleikinn. Hálfleikstölur voru 2 - 0 fyrir Fjölnismenn sem settu mörk á '32 mín og '39 mín. Eitthvað hefur Deanó lesið yfir okkar mönnum í hálfleik því þeir komu fílelfdir í seinni hálfleikinn og jöfnuðu metin með mörkum frá David Diztl (Dobbúl Dí) og hinum nýbakaða föður Túfa.

Upphitun: Fjölnir - KA

Það verða Fjölnismenn frá Grafarvogi sem taka á móti okkar mönnum í 18 umferð Íslandsmótsins í fótbolta.

KA-menn hita upp á Gullöldinni í Grafarvogi

Næsti leikur KA er á Fjölnisvelli í Grafarvogi, á menningarnótt, laugardaginn 21. ágúst. KA-menn ætla að því tilefni að hittast á Gullöldinni við Hverafold í hádeginu og bera saman bækur sínar, borða saman ofl.

Umfjöllun: KA - Fjarðabyggð

Á rennandi blautum en mjög góðum Akureyrarvelli mættust  KA og lið Fjarðabyggðar í 17 umferð Íslandsmótsins sl. þriðjudagskvöld.

Upphitun: KA - Fjarðabyggð

Það er skammt stórra högga á milli hjá okkar mönnum og leikur gegn Fjarðabyggð blasir við. Gestum okkar hefur ekki gengið vel og eru þeir sem stendur í næst neðsta sæti 1 deildar aðeins með 11 stig og þar liggur eins og einn hundur grafinn.  Þeir unnu okkur nefnilega í fyrri leik þessara liða í sumar og nú er sko komið að því að við sækjum hefnd.