14.01.2013
Síðastliðinn fimmtudag 10.janúar 2012 var krýndur íþróttamaður Fimleikafélagsins fyrir árið 2012.Undanfarin ár hefur valið farið þannig fram að valinn hefur verið einn fulltrúi í keppnisgrein og einn af þeim síðan verið valinn íþróttamaður félagsin.
14.01.2013
Í dag hefur göngu sína nýr liður sem ég kýs að kalla "KA-lið vikunnar" þar sem ég mun velja eitthvað KA lið úr
sögu félagsins í öllum íþróttagreinum og gera smá skil á því flotta liði sem fyrir valinu verður. Þar sem
félagið er ný orðið 85 ára held ég að það eigi vel við að fyrsta lið vikunnar sé...
14.01.2013
Tólfti janúar 2013 verður skráður með
stóru letri í sögu KA. Þetta er dagurinn sem haldið er upp á 85 ára afmæli félagsins og þetta er sömuleiðis dagurinn sem
framkvæmdir hófust með formlegum hætti við nýjan gervigrasvöll á félagssvæðinu - milli KA-heimilisins og Lundarskóla. Tveir
KA-félagar með stórt félagshjarta, Siguróli Sigurðsson og Þormóður Einarsson, tóku fyrstu skóflustunguna að nýja
grasvellinum að viðstöddu fjölmenni. Þórir Tryggva var að sjálfsögðu með myndavélina á lofti og tók myndir sem hægt
er að skoða hér að neðan.
Myndasafn
14.01.2013
Í leik KA og KF urðu KA menn fyrir miklu áfalli þegar fyrirliði liðsins, Gunnar Valur Gunnarsson, féll í grasið og var ljóst frá byrjun
að meiðsli hans voru alvarleg. Nú hefur það verið staðfest að hásin hans slitnaði og við tekur aðgerð í vikunni og að henni
lokinni sjúkraþjálfun og endurhæfingarferli og stefnir fyrirliðinn á að snúa aftur til baka í júlí.
14.01.2013
Tveir KA leikir fóru fram á Kjarnafæðimótinu í fótbolta um helgina þegar KA og KA 2 mættu bæði liði KF frá
Fjallabyggð, bæði lið unnu góða sigra og má segja að sigur KA 2 hafi komið talsvert á óvart en liðið sigraði 4-0. KA sigraði
mjög öruggan 3-1 sigur eftir að hafa lennt 1-0 undir. Með því að smella á lesa meira má lesa umfjallanir KDN um leikina.
13.01.2013
85 ára afmælishátíð KA fór fram í gærkveldi í KA-Heimilinu og var mikið um dýrðir eins og von er á þegar
tæplega 400 KA menn koma saman með það að markmiði að skemmta sér og öðrum. Veislustjóri kvöldsins var enginn annar en Rögnvaldur
gáfaði og má með sanni segja að hann hafi farið á kostum með sínum flugbeitta húmor og snilligáfu.
13.01.2013
Á afmælishátíð KA í gær voru íþróttamenn deildanna heiðraðir fyrir árangur sinn á árinu en það
voru þau Alda Ólína Arnarsdóttir (Blak), Daníel Matthíasson (Handbolti), Gunnar Valur Gunnarsson (Fótbolti) og Helga Hansdóttir
(Júdó). Eins og venjan er var svo valinn íþróttamaður félagsins og að þessu sinni var það Alda Ólína sem hreppti
hnossið en hún átti frábært ár.
12.01.2013
Tólfti janúar 2013 verður skráður með stóru letri í sögu KA. Þetta er dagurinn sem haldið er upp á 85 ára afmæli
félagsins og þetta er sömuleiðis dagurinn sem framkvæmdir hófust með formlegum hætti við nýjan gervigrasvöll á
félagssvæðinu - milli KA-heimilisins og Lundarskóla. Tveir KA-félagar með stórt félagshjarta, Siguróli Sigurðsson og
Þormóður Einarsson, tóku fyrstu skóflustunguna að nýja grasvellinum að viðstöddu fjölmenni.
11.01.2013
Um helgina munu okkar lið leika sitt hvorn leikinn í Kjarnafæðismótinu. Á morgun
laugardag leikur KA sinn annan leik í mótinu og er mótherjinn að þessu sinni KF frá Fjallabyggð undir stjórn Lárusar Orra
Sigurðssonar.
11.01.2013
Það verður mikið um að vera í KA-heimilinu á morgun og síðan aftur annað kvöld þegar blásið verður til mikillar 85
ára afmælishátíðar.