Fréttir

Tilnefningar til Íþróttamanns KA 2012

Tilefningar til Íþróttamanns KA fyrir árið 2012 liggja nú fyrir og eru sem fyrr tilnefningar frá öllum deildum félagsins sem störfuðu á árinu. Fjórir eru því tilnefndir - frá handknattleiks-, knattspyrnu-, blak- og júdódeild. Íþróttamaður KA verður útnefndur núna í janúar Tilnefndir eru:

Matseðill á afmæli KA

Hérna má sjá hvað verður á boðstólnum á afmæli KA laugardaginn 12.janúar næstkomandi. Maturinn kemur frá Bautanum og má segja að maður verður bara svangur á því að lesa þetta

Staðfest niðurröðun leikja KA í Lengjubikarnum

KSÍ hefur staðfest niðurröðun leikja í Lengjubikarnum í knattspyrnu, sem hefst í febrúar. KA er í A-deild, 2. riðli í mótinu. KA mun spila við fjögur Pepsídeildarlið; Fram, Breiðablik, Val og ÍA og þrjú 1. deildarlið; Víking R, Völsung og Selfoss. Leikjaniðurröðunin er sem hér segir:

Frítt á handboltaæfingar í janúar

KRAKKAR! LANGAR YKKUR Á HM Í HANDBOLTA? Sá draumur gæti ræst ef þið æfið handbolta.  Nú býður KA öllum strákum og stelpum að mæta frítt á handboltaæfingar í janúar og prófa hvort þetta er eitthvað sem þig langar að stunda í framtíðinni og jafnvel að spila með landliðinu eða stórliði í Þýskalandi nú eða bara að vera með í skemmtilegum félagsskap og taka þátt í hressum leik. Öllum frjálst að mæta og prófa.

„KA skemmtun í kvöld!“

Margar myndir hafa verið settar inn í tilefni dagsins á samskiptavefinn Facebook. Ruth Bergsdóttir setti t.d. mynd sem á vel við í dag en hún er tekin af nokkrum vöskum KA - mönnum sem voru að kynna KA - skemmtun sem átti að vera síðar um kvöldið. Væntanlega hefur skemmtunin verið til fjáröflunar félagsins, en nokkuð var um að slíkar skemmtanir voru haldnar á vegum félagsins, en slíkt hefur að mestu lagst af í dag, enda fátt sem át upp tíma og athygli fólks á þessum árum eins og í dag. Myndin er úr safni föður Ruthar, Bergs Eiríkssonar, sem keppti á skíðum fyrir félagið. Þó svo að engin skemmtun sé í kvöld, þá verður 85. ára afmælinu gert hátt undir höfði n.k. laugardag á mikilli KA skemmtun! Hægt er að smella á myndina til að sjá hana í fullri stærð.

Stofnfundargerð KA, 8. janúar 1928

Eins og fram hefur komið er Knattspyrnufélag Akureyrar 85. ára í dag, en félagið var stofnað þann 8. janúar 1928 þegar 12 ungir drengir komu saman með það í huga að stofna nýtt íþróttafélag hér í bæ. 85. árum síðar er félagið eitt þekktasta og farsælasta íþróttafélag landsins og lítur ágætlega út þrátt fyrir aldur og fyrri störf. Héraðskjalasafnið á Akureyri birti í dag fundargerðina frá stofnfundinum 1928, handrskrifaða á A4 blað. Hana má sjá með að smella á "lesa meira".

KA 85 ára í dag!

Knattspyrnufélag Akureyrar er 85 ára í dag. Félagið var stofnað þann 8. janúar 1928 að Hafnarstræti 23, á heimili hjónanna Margrétar og Axel Schiöth, bakara. Tólf vaskir drengir stofnuðu félagið. Tímamótanna verður minnst með veglegum hætti nk. laugardag, 12. janúar.

Íþróttamaður FIMAK 2012

Fimmtudaginn næstkomandi, 10.janúar klukkan 17.00 verður íþróttamaður FIMAK kynntur.Við hvetjum iðkendur og foreldra til þess að koma og fylgjast með athöfninni og gleðjast með krökkunum sem skarað hafa fram úr á árinu.

Stundatafla vorönn 2013 útgáfa 2

Hér birtist fyrsta útgáfa af stundatöflu vorannar 2013.Athugið að þetta er birt með fyrirvara um villur og jafnframt kemur hún til með að breytast eitthvað á næstu vikum þar sem að tilfærslur á milli hópa er ennþá í vinnslu og framhaldsskólanemarnir eru ekki komin með sínar stundatöflur í hendur.

Mikasadeildin: KA - Stjarnan

Stjarnan heimsótti KA í gær og var bæði leikið í karla- og kvennaflokki í Mikasadeildinni. KA-menn sigruðu í karlaflokki 3-1 í miklum baráttuleik. KA-menn voru seinir í gang í fyrstu hrinunni og töpuðu henni naumlega 26-28. Þeir tóku svo næstu þrjár 25-21, 25-22 og 26-24.