Fréttir

Dávid Disztl: Frábær tilfinning að vera í gulu og bláu aftur

Nýjasti liðsmaður KA er eins og flestir vita ungverski framherjinn Dávid Disztl sem er okkur KA-mönnum vel kunnu,r enda raðaði hann inn mörkum fyrir félagið 2009 (15 í 19 leikjum) og 2010.

Ársmiðar til sölu!!

Stuðningsmönnum KA í knattspyrnu er bent á að nú stendur yfir sala ársmiða á heimaleiki KA í sumar. Við hvetjum sanna stuðningsmenn að fá sér ársmiða á völlinn í sumar og tryggja sér um leið kaffi og meðlæti í hálfleik. Miðana er hægt panta með því að hringja í Óskar Þór, framkvæmdastjóra knattspyrnudeildar, í síma 773 3009 eða senda póst á oskar@ka-sport.is Við skorum á stuðningsmenn KA að sýna stuðning sinn í verki og tryggja sér ársmiða. Minnum á að fyrsti heimaleikurinn er nk. föstudag, 25. maí, þegar við tökum á móti Víkingi R, sem spekingarnir spá að tryggi sér úrvalsdeildarsæti á nýjan leik með því að verða annað hvort í 1. eða 2. sæti 1. deildar í haust.

Frábær 1-3 útisigur á Leikni

KA-menn sigldu frábærum 1-3 útisigri í höfn gegn Leikni í Breiðholtinu í gær. Það er ár og dagur síðan KA hefur unnið Breiðhyltinga á þeirra heimavelli og því var sigurinn ákaflega sætur.

KA mætir Fjarðabyggð í bikarnum

KA spilar á Akureyrarvelli gegn Fjarðabyggð í 32ja liða úrslitum bikarsins. Þetta varð ljóst eftir dráttinn í höfuðstöðvum KSÍ í dag. Margir aðrir spennandi leikir fara fram í þessari umferð bikarsins, en hæst ber vissulega endurtekinn slagur Skagamanna og KR á Akranesi

Upphitun: Leiknir - KA 19.maí klukkan 14:00

2.umferð 1.deildarinnar fer fram á morgun og líkt og í fyrstu umferðinni fara okkar menn í Breiðholtið og mæta núna Leikni Reykjavík kl 14:00 á morgun, laugardag.

Lokahóf yngri flokka handknattleiksdeildar - myndir

Lokahóf yngri flokka handknattleiksdeildar KA var haldið á miðvikudagskvöldið 16. maí s.l. í KA heimilinu. Fjöldi manns mætti og var mikið fjör, farið var yfir starf vetrarins en um 250 iðkendur æfðu handbolta í vetur og héldum við 2 stór mót hér fyrir norðan í samvinnu við Þór.

2. fl. kk. í knattspyrnu: 0-1 tap gegn Þrótti/SR í fyrsta leik Íslandsmótsins

KA tapaði fyrsta leik sínum í 2. fl. kk. B-deild Íslandsmótsins í Boganum í dag. Andstæðingarnir voru Þróttur/SR og sóttu gestirnir 1-0 sigur. Markið kom úr víti á átjándu mínútu, sem var dæmt á hendi varnarmanns KA. Heilt yfir var KA sterkari aðilinn í leiknum, en gekk illa að skapa sér góð marktækifæri. 

Góður bikarsigur á Magna

KA-menn voru á skotskónum í Boganum í kvöld þar sem þeir mættu nágrönnum okkar í Magna á Grenivík. Þegar upp var staðið höfðu KA-menn skorað sjö mörk gegn engu.

Sjónvarpsstöðin N4 ætlar að taka sýningarnar upp

N4 ætlar að taka allar sýningarnar upp og verður hægt að kaupa DVD disk með upptökunum á.Diskurinn kostar 1.500,- kr.og veður hægt að panta disk á sýningunum.Greiða þarf diskinn við pöntun.

Magni - KA í bikarnum: Hvað segir Andrés?

Sérfræðingur KA-sport.is Andrés Vilhjálmsson er búinn að rýna í spákúluna fyrir leik KA og Magna í bikarnum, sem fram fer í Boganum miðvikudaginn 16. maí kl. 19:00.