05.06.2012
Á morgun miðvikudag mætast KA og Fjarðabyggð í Borgunarbikarnum. Þetta er leikur í 32 liða úrslitum bikarsins, leikurinn fer fram á
Akureyrarvelli og hefst hann kl 19.15
03.06.2012
Laugardaginn 16.júní kl 19.00 næstkomandi verður heljarinnar hátíð á KA svæðinu. Við ætlum að endurvekja
Jónsmessugleði KA sem síðast var haldin 1992.
03.06.2012
Á
föstudaginn var lokahóf og verðlaunaafhending hjá meistaraflokki KA/Þór í handboltanum. Af því tilefni var tilkynnt um val á
þeim leikmönnum sem sköruðu fram úr í vetur.
01.06.2012
Næsti leikur KA er á morgun gegn Fjölni í Grafarvoginum og hefst hann kl 16. Við sitjum sem stendur í stjötta sæti með fjögur stig,
gestgjafar okkar hafa fimm stig í fimmta sæti.
31.05.2012
KEA hefur endurnýjað styrktarsamninga við Íþróttafélagið Þór og Knattspyrnufélag Akureyrar. Halldór Jóhannsson,
framkvæmdastjóri KEA, segir félagið hafa lagt metnað sinn í að skila stórum hluta afkomu sinnar til eflingar íþrótta- og
æskulýðsstarfi á félagssvæðinu og ætíð ánægjulegt fyrir félagið að geta látið gott af sér
leiða á þessu sviði. Sigfús Helgason skrifaði undir samninginn fyrir hönd Þórs og Hrefna G. Torfadóttir fyrir hönd KA. Þau
sögðu að þessir styrktarsamningar hefðu reynst afar þýðingarmiklir á undanförnum árum og nýttust sérstaklega vel við
eflingu á starfi og uppbyggingu íþróttafélaganna.
27.05.2012
KA og Víkingur skildu jöfn 1-1 á föstudaginn í 3.umferð 1.deildar karla. Björgvin Kolbeinsson og Jóhann Már tóku leikinn upp og
Jóhann setti saman helstu atvikin úr leiknum sem þið getið séð með því að smella á lesa meira
25.05.2012
KA og Víkingur R deildu stigunum í leik liðanna á Akureyrarvelli í kvöld þar sem vindurinn var í aðalhlutverki. Víkingar skoruðu
í fyrri hálfleik með sterkan vind í bakið og síðan snerist dæmið við í seinni hálfleik og Dávid Diszt jafnaði metin
eftir fína sendingu frá hægri. Jafntefli því niðurstaðan sem verða að teljast nokkuð sanngjörn úrslit.
25.05.2012
Í dag er síðasti dagur æfinga hjá yngri flokkum í handbolta hjá KA á þessu tímabili, nema hjá 4. flokki karla og kvenna sem
æfa fyrir Partille ferð í sumar.
Við þökkum iðkendum fyrir veturinn og vonumst til að sjá ykkur öll hress og kát á æfingum næsta haust.
Þjálfarar og Unglingaráð handknattleiksdeildar KA
25.05.2012
Í kvöld klukkan 18.30 munu okkar menn hlaupa útá Akureyrarvöll í fyrsta sinn á þessu tímabili og verður andstæðingurinn
Víkingur frá Reykjavík. Leikurinn er liður í 3 umferð 1 deildar en KA er með 3 stig eftir frábæran sigur gegn Leikni í 2 umferð.
25.05.2012
Lang flestar ljósmyndir sem pantaðar voru eru komnar.Hægt verður að nálgast myndirnar hingað í íþróttamiðstöðina við Giljaskóla í dag föstudag kl.12-13.30 og kl.16-18.