Fréttir

Ferðaplan og uppl. 5.flokkur

Hér má sjá ferðaplan og allar nauðsynlegar upplýsingar fyrir keppnisferðina hjá öllum í 5.flokki, mæting er við íþróttamiðstöðina við Giljaskóla klr.12.00 á laugardaginn.

3 dagar: KA-menn spá í spilin fyrir komandi leiktíð (2/3)

Þá er komið að þrem góðum KA mönnum í viðbót og þeirra spá fyrir komandi sumar, að þessu sinni eru það þeir Hjörvar Maronsson, fyrrum leikmaður KA og nýr stjórnarmeðlimur, Siguróli Sigurðsson, harður stuðningsmaður og formaður Vinir Sagga og að lokum Hlynur Örn Ásgeirsson, harður KA-maður.

SportTV sýnir beint frá leikjum í 1. deildinni í sumar!

SportTV vefsíðan sýnir beint frá a.m.k. einum leik í hverri umferð 1. deildar karla í sumar. Þetta eru góð tíðindi og mun klárlega auka áhuga á leikjum í deildinni í sumar, sem verður alveg örugglega mjög spennandi og jöfn. Samningar um þetta tókust í gær milli Knattspyrnusambands Íslands og SportTV.

Ný útgáfa af stuðningslagi KA í burðarliðnum

Nú er unnið hörðum höndum að því að endurvinna gamla, góða stuðningslag KA, sem Bjarni Hafþór Helgason samdið árið 1989 - árið sem KA varð Íslandsmeistari í knattspyrnu. Það er Jóhann Már Kristinsson, sem hefur haft veg og vanda að þessari vinnu og afraksturinn mun gleðja eyru stuðningsmanna KA og fleiri um það leyti sem KA tekur á móti Víkingi R í fyrsta heimaleiknum á þessu keppistímabili.

4 dagar: KA-menn spá í spilin fyrir komandi leiktíð (1/3)

Nú eru einungis 4 dagar í að flautað verður til leiks í 1. deildinni og fékk ég því 9 góða KA menn til að spá í spilin fyrir komandi sumar. Fyrstir ríða á vaðið Egill Ármann (þjálfari), Aðalbjörn Hannesson (þjálfari) og Orri Gústafsson sem lék með KA í fyrra en tók sér frí frá fótboltanum og hélt til Japans í nám í sjávarútvegsfræði.

Hellingur af myndum frá frægðarför 2. flokks Akureyrar

Eins og kunnugt er þá varð 2. flokkur Akureyrar Handboltafélags Íslandsmeistari um helgina. Eftir að hafa unnið til silfurverðlauna ár eftir ár eftir ár tókst loks að brjóta ísinn og landa stóra titlinum. Þórir Tryggvason fór með strákunum suður og sendi okkur glæsilegan myndapakka frá ferðalaginu.

Skipulag Vormóts í hópfimleikum

Hér er að finna skipulag vormóts FSÍ sem fram fer um næstu helgi á Egilsstöðum.

Ungmennaklúbbur KA: Langar þig að vera í stjórn

Við erum að leita af krökkum á aldrinum 14-20 ára sem langar að sitja í stjórn Ungmennaklúbbs KA sem var stofnaður fyrr í vetur. Ungmennaklúbbur KA er klúbbur sem er ætlað að halda viðburði í KA heimlinu fyrir yngri kynslóð KA og gera sitt af mörkum til að gera KA heimilið að betri og skemmtilegri stað. Ungmennaklúbburinn er fyrir alla KA krakka sama í hvaða íþrótt þeir eru

0-1 tap gegn Þjóðverjum í dag

Þjóðverjar höfðu betur gegn okkar strákum í U-17 landsliðinu í Evrópumóti landsliða í Slóveníu í dag. Þjóðverjarnir skoruðu markið sem skildi liðin að á 20. mínútu leiksins. KA-mennirnir Fannar Hafsteinsson og Ævar Ingi Jóhannesson voru í byrjunarliðinu í dag - Ævari var skipt útaf rétt undir lok leiksins.  

5.dagar: KA spáð 6.sæti af fyrirliðum og þjálfurum

Í árlegri spá fyrirliða og þjálfara 1.deildar á vefsíðunni Fótbolti.net er okkur KA-mönnum spáð 6. sæti í deildinni í sumar eða tveim sætum ofar en við enduðum í fyrra. Garðar Gunnar Ásgeirsson er sérfræðingur Fotbolti.net í þessum spádómi og hann hafði þetta  að segj um KA-liðið: