Fréttir

Rakel Hönnudóttir Íþróttamaður Akureyrar 2008

Rakel Hönnudóttir, knattspyrnukona í Þór/KA er Íþróttamaður Akureyrar 2008. Önnur í kjörinu var Dagný Linda Kristjánsdóttir, skíðakona í Skíðafélagi Akureyrar og í þriðja sæti var Bryndís Rún Hansen, sundkona í Óðni.

Árið 2008 hjá Knattspyrnufélagi Akureyrar - Annáll eftir Tryggva Gunnars

Tryggvi Gunnars fór yfir árið 2008 hjá Knattspyrnufélagi Akureyrar í afmælishófinu sem haldið var þann 11. janúar s.l. Við birtum hann nú í heild sinni hér á síðunni. Annállinn er eftir Tryggva Gunnars með aðstoð félaga í aðalstjórn.

Æfingagjöld felld niður í júdó

/* Vegna rausnarlegs styrks Samherja svo og stuðnings velunnara júdódeildar KA þá eru æfingagjöld í júdó felld niður og er því frítt að æfa.  Júdódeild KA þakkar heilshugar þessum aðilum stuðninginn. Um þessar myndir æfa eru um 100 iðkendur í júdó.  Við getum hæglega tekið við mun fleiri og bjóðum við því alla velkomna.  Nú í vetur hefur verið talsvert um það að þeir sem æfðu júdó á unga aldri en hættu hafa snúið til baka.  Við skorum á fleiri að gera slíkt hið sama, við lofum að vera mjúkhentir við alla þá sem snúa til baka. 

Meistaraflokkur kvenna: Sigur gegn Haukum í deildinni

Meistaraflokkur kvenna hjá KA/Þór spilaði við B lið Hauka á sunnudag en þetta var fyrsti heimaleikur meistaraflokks kvenna á þessu tímabili. Stelpurnar mættu vel stemmdar til leiks og tóku strax forustu sem þær héldu til loka leiks. Sóknarleikurinn var heilt yfir góður en vörnin hefði mátt vera betri á köflum. Nokkrar af þessum stúlkum tóku fram skóna að nýju fyrir þennan vetur og því virkilega gaman að sjá þær koma aftur til baka.

4. flokkur kvenna: Tap hjá B-liðinu gegn Haukum

Stelpurnar í B liði 4. flokks áttu slæman dag á móti Haukum á sunnudag. Haukarnir byrjuðu mun betur og komust í 1-6. KA stelpur skiptu þá um gír og náðu að minnka í 6-7 en misstu svo leikinn frá sér aftur. KA stelpur komust þó nokkrum sinnum aftur inn í leikinn en misstu hann ætíð frá sér út af eigin klaufaskap.

3. flokkur kvenna: Góður sigur á Haukum

3. flokkur kvenna spilaði við Hauka á laugardaginn. Fyrri hálfleikurinn var virkilega dapur og áttu Hauka stúlkur tvö mörk í hálfleik, staðan 11-13. Eftir hressandi hálfleikspásu mætti allt annað lið inn á völlinn. Vörnin virkilega góð, sóknin ákveðin og full af sjálfstrú og markvarslan frábær.

4. flokkur karla: 5 sigrar í 7 leikjum

/* /* 4. flokkur í handbolta fór suður um helgina að leika. Ferðin gekk mjög vel og handboltalega séð var spilamennskan mest megnis góð um helgina. A-lið flokksins er mætt aftur til leiks og sýndi það eftirminnilega um helgina en þeir unnu alla sína þrjá leiki glæsilega. B-liðið bæði spiluðu tvo leiki og unnu sitt hvorn leikinn.

Góð stemming á 81. árs afmæli KA - Matus Sandor íþróttamaður KA 2008

Á bilinu 160 - 70 manns sóttu afmælishátíð Knattspyrnufélags Akureyrar sem haldin var í dag. Þar voru haldnar nokkrar ræður og kjöri á íþróttamanni KA lýst. Það var Matus Sandor sem að hlaut tiltilinn þetta skiptið en í öðrusæti var Piotr Slawomir Kempisty og þriðja sætinu skiptu þær Una Margrét Heimisdóttir og Arna Valgerður Erlingsdóttir á milli sín. Frekari upplýsingar um þá sem tilnefndir voru er hægt að finna hér. Höskuldur Þórhallsson hélt ræðu um hvernig það er að vera K.A.-maður og Tryggvi Gunnarsson fór yfir liðið ár 2008. Annáll Tryggva Gunnarssonar birtist hér á síðunni von bráðar. Sjáðu myndir hér.

KA - Völsungur á morgun

Á morgun fer fram fyrsti mótsleikur okkar manna á árinu og nýju tímabili þegar þeir mæta Völsungum í leik sem er hluti af Soccerademótinu.