Fréttir

3. flokkur karla: Stórleikur við Þór á miðvikudag kl. 20:00

Næstkomandi miðvikudag verður sannkallaður stórleikur í íþróttahúsi Síðuskóla. Þar munu eigast við Þór og KA. Bæði lið hafa staðið sig mjög vel í deildinni í vetur og eru liðin í topp 4.  Þessi lið hafa mæst einu sinni í vetur og sýndu þar að miklir hæfileikar eru til staðar. Því viljum við hvetja alla sem vilja sjá alvöru handbolta að koma í íþróttahús Síðuskóla miðvikudaginn 28. janúar kl. 20:00.  Athugið að leiktímanum var breytt!

KA fær Akureyrarvöllinn

Bæjarráð Akureyrar hefur samþykkt samkomulag við KA vegna notkunar og reksturs Akureyrarvallar sem fyrirhugað var að rífa fljótlega.

KA mætir Þór2 í kvöld

Í kvöld leikur KA sinn annan leik í Soccerademótinu og er andstæðingurinn annar flokkur Þórs.

Fyrstu stigin hjá öðrum flokknum komin í hús

Á fimmtudagskvöldið sl. náði annar flokkur í sín fyrstu stig í Soccerademótinu með sigri á Magna.

Helga bætti við öðru gulli á Afmælimóti Júdósambandsins.

Helga Hansdóttir, sem vann sigur í fullorðinsflokki í gær, keppti í dag í sínum aldursflokki sem er 15-16 ára.  Helga vann yfirburðasigur og kom því heim með tvenn gullverðlaun frá mótinu.  Faðir Helgu, Hans Rúnar Snorrason, kom heim með tvenn bronsverðlaun svo óhætt er að segja að Helga hafi verið föðurbetrungur :).

4. flokkur: B-liðin bæði með sigra

Bæði B-lið 4. flokks karla fylgdu fordæmi A-liðsins frá því í gær eftir og unnu bæði leiki sína gegn HK í dag. B-1 vann sannfærandi sigur 31-12 eftir að hafa verið 13-8 yfir í hálfleik. B-2 aftur á móti lentu í hörkuleik en unnu að lokum 18-17 en liðið hafði verið mest fjórum mörkum yfir í leiknum. Góð helgi hjá 4. flokk því staðreynd.

Frábært hjá Helgu og Hans á Afmælismóti Júdósambandsins.

Hans Rúnar Snorrason og Helga Hansdóttir kepptu á Afmælismót Júdósambandsins sem fram fór í Reykjavík í gær. 

4. flokkur: Flottur sigur hjá A-liði

A-lið 4. flokks karla lék í dag gegn HK í KA-Heimilinu. Um var að ræða hörkuleik þar sem KA-menn léku mjög vel og bættu leik sinn mikið frá seinustu helgi. Þeir spiluðu góða vörn og unnu 31-26 sigur eftir að hafa verið 15-12 yfir í hálfleik. Liðið lék mjög hraðan handbolta og fékk t.d. fjölda góðra marka úr hraðaupphlaupum sem vörnin skapaði.

Meistaraflokkur kvenna: KA/Þór fær FH í undanúrslitum bikarkeppninnar

Nú í hádeginu var dregið um hvaða lið mætast í  undanúrslitum Eimskipsbikars kvenna. 2. deildar lið KA/Þór dróst á móti FH sem leikur í N1 deildinni og fær KA/Þór heimaleikinn. Í hinum undanúrslitaleiknum mætast Haukar og Stjarnan. Leikirnir fara fram 14. - 15. febrúar.

4. flokkur: Öll lið með leiki um helgina

Öll þrjú lið 4. flokks karla í handbolta eiga leiki um helgina í KA-Heimilinu en HK-ingar koma norður. Fólk er eindregið hvatt til þess að mæta en öll liðin eru að berjast á toppnum í sínum deildum og þurfa á góðum leikjum um helgina að ræða. Dagskráin er svohljóðandi: Laugardagur: 15:00: KA - HK (A-lið) Sunnudagur: 10:00: KA2 - HK2 (B-lið) 11:00: KA - HK (B-lið)