Fréttir

3. flokkur karla: Leikur við HK á laugardaginn

Næstkomandi laugardag taka strákarnir í 3. fl. á móti HK. Strákarnir hafa byrjað nýja árið vel og unnið báða leikinna til þessa. Strákarnir hafa spilað við HK fyrir sunnan og unnu þann leik, því eiga HK menn harma að hefna. Strákarnir ætla sér þó ekkert annað en sigur og viljum vilja því hvetja alla til að koma í KA-húsið kl: 16.10 á laugardaginn.

Þórður Arnar Þórðarson framlengdi við KA

Varnarmaðurinn Þórður Arnar Þórðarson sem kom til KA frá Þór um mitt sumar árið 2007 framlengdi samning sinn við KA á dögunum.

Andri og Haukur æfa með U19

Andri Fannar Stefánsson og Haukur Heiðar Hauksson hafa verið valdir í æfingahóp U19 ára landsliðsins á æfingar sem fram fara um helgina fyrir sunnan.

Annar flokkur mætir Magna í kvöld

Strákarnir í öðrum flokki mæta Magna í Soccerademótinu í kvöld en Magni mun leika í 2. deild í sumar.

3. flokkur kvenna; Magnaður sigur á Fylki

Stelpurnar í 3. flokk mættu Fylki síðastliðinn sunnudag. Fyrir leikinn voru Fylkisstúlkur taplausar á Íslandsmótinu og sátu þar af leiðandi í efsta sæti deildarinnar. KA stelpur byrjuðu leikinn af miklum krafti og einbeitingin skein úr augunum á þeim. Í vörninni börðust þær eins og ljón og sóknarlega voru þær ákveðnar og umfram allt skynsamar. Einbeiting og baráttugleði KA/ Þórs stúlkna virtist slá Fylkisstelpur alveg út af laginu. Í hálfleik var staðan 18-13 fyrir KA/Þór og hefðu þær jafnvel getað leitt með fleiri mörkum, slíkir voru yfirburðirnir.

4. flokkur kvenna B: Erfitt gegn Fylki

B liðið spilaði gegn liði Fylkis sem situr í efsta sæti deildarinnar.  B liðið er að stórum hluta skipað leikmönnum úr 5. flokk og því ljóst að um erfiðan leik var að ræða. Stelpurnar létu þó finna vel fyrir sér og létu Fylki þurfa að berjast fyrir hlutunum. Þrátt fyrir að hafa tapað leiknum með sex mörkum, 14-8 var allt annað að sjá til þeirra í þessum leik miðað við leikinn gegn Haukum.

4. flokkur kvenna: Tveir sigrar um helgina

A lið 4. flokks spilaði gegn Gróttu3 á laugardeginum. Þetta var fyrsti heimaleikur A liðsstúlkna og einungis þriðji leikurinn þeirra í deild. Það er best að hafa sem fæst orð um leikinn. Sóknarlega voru stelpurnar ragar í sínum aðgerðum og langt frá sínu besta.  Stelpurnar gerðu mörg sóknarmistök og ef ekki hefði verið fyrir góða vörn og markvörslu hefði leikurinn getað endað illa. Sem betur fer sýndu stelpurnar þó góðan karakter og kláruðu leikinn með sigri. 15-14 voru lokatölur í leik sem seint verður talinn fallegur handboltaleikur. 

Dínó á þjálfaranámskeiði í Englandi

Dean Martin eða Dínó, spilandi þjálfari meistaraflokks, er þessa dagana staddur í Englandi þar sem hann sækir KSÍ VI þjálfaranámskeið.

2. flokkur tapaði gegn Þór

Á laugardaginn sl. lék annar flokkur gegn aðalliði Þórs í Boganum en leikurinn var hluti af Soccerademótinu. KA1 sem er skipað leikmönnum meistaraflokks átti ekki leik þessa helgina.

Hreyfing og útivist verkefnið gengur vel

Verkefnið Hreyfing og útivist sem fór af stað í síðustu viku. Mikil aðsókn hefur verið að námskeiðum sem að haldin hafa verið á vegum þessa verkefnis og hafa þau mælst mjög vel fyrir. Nú er komin upp heimasíða fyrir Hreyfingu og útivist og getur þú komist inn á hana með því að smella Hreyfing og útivist hér vinstra megin á síðunni. Þarna er hægt að finna tímatöflu, fréttir, tilkynningar ofl. Upplýsingar munu bætast jafnt og þétt inn á síðuna. Við hvetjum að sjálfsögðu alla að nýta sér þá frábæru kosti sem þetta verkefni býður upp á!