Fréttir

Gleðileg jól!

Handknattleiksdeild KA vill óska landsmönnum nær og fjær gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

Myndir frá jólaæfingu 7. og 8. flokks

Laugardaginn 20. desember var  sérstök jólaæfing í KA-heimilinu fyrir 7. og 8. flokk. Þar var farið í ýmsa leiki og óvæntir gestir kíktu í heimsókn með glaðning í pokanum. Þórir Tryggvason sendi okkur fullt af myndum frá æfingunni. Smelltu hér til að skoða myndirnar.

Æfingatímar 4. flokks kvenna fram að áramótum

22. desember  útiæfing, mæta í KA heimilið klukkan 13:50 27. desember útiæfing klukkan 11:30, mæta upp í KA heimili 29. desember 15:00-16:30 í KA heimilinu 30. desember 13:00-14:30 í KA heimilinu

7. og 8. flokkur pilta og stúlkna

Æfingar hefjast aftur á nýju ári, miðvikudaginn 7. janúar kl. 15:00 hjá stúlkum en fimmtudaginn 8. janúar kl. 14:30 hjá piltum. Gleðileg jól Einvarður, Sævar, Lovísa og aðstoðarmenn

6. flokkur stráka: Æfingar um jól og áramót

Að þessu sinni verða æfingar hjá strákunum í 6. flokki þrátt fyrir jólafrí í skólum. Næstu æfingar verða sem hér segir:    Laugardaginn 20. desember klukkan 10:30-11:30    Mánudaginn 22. desember klukkan 15:30-16:30    Laugardaginn 27. desember klukkan 10:30-11:30 Eftir áramótin verða æfingar síðan samkvæmt hefðbundinni æfingatöflu.

3. flokkur kvenna: Annar sigurinn á nokkrum dögum

Það var skammt á milli leikja hjá stelpunum. Fínt að bíða fram í desember eftir því að spila heimaleik og fá síðan tvo í einni viku. Fyrir leik var talað um hversu mikilvægt það er að mæta ákveðin til leiks og byrja leikinn af krafti. Það hugarfar skilaði sér þó engan veginn inn á völlinn og andleysið var algert. Varnalega voru þær að berjast en náðu þó aldrei að klára brotin nægilega vel ásamt því að einöld innleysing splundraði vörninni allt of auðveldlega. Fyrir vikið skoruðu FH stúlkur allt of mörg fyrirhafnarlítil mörk.

3. flokkur kvenna: Sigur gegn Fram

Stelpurnar í KA/Þór mættu Fram síðastliðin föstudag. Fyrir leikinn voru norðanstúlkur án stiga eftir töp gegn Fylki og Stjörnunni en leikurinn við Fram var jafnframt fyrsti heimaleikur 3. flokks kvenna þetta tímabilið. Síðast þegar þessi tvö lið mættust í vetur unnu Fram stúlkur auðveldan sigur, 25-18.

3. flokkur kvenna mætir FH í dag miðvikudag

KA/Þór í 3. fl. kvenna leikur sinn annan heimaleik í vetur og síðasta leik fyrir jól á í dag, miðvikudaginn 17. des. kl. 17:30 í KA heimilinu. Leikið verður gegn FH sem er fyrir ofan miðja deild en raunar hafa liðin leikið mismarga leiki í deildinni.  Stelpurnar í KA/Þór mættu Fram síðasta föstudag og unnu þar góðan sigur 24-22 eftir að staðan hafði verið jöfn í hálfleik 12-12. Það er því ástæða til að koma og hvetja stelpurnar okkar til sigurs.

4. flokkur: B-liðin með sigur og tap

/* Bæði B-lið 4. flokks léku í dag á Íslandsmótinu. B1 lék við Fram og tapaði með einu marki 23-22 eftir að hafa klúðrað þeim leik algjörlega sjálfir. B2 aftur á móti vann mjög góðan sigur á ÍR 20-15 eftir að hafa verið 11-7 yfir í hálfleik. Liðin eru þá búin með alla sína leiki á þessu ári. B-1 hefur unnið þrjá leiki en tapað einum.  B-2 aftur á móti hafa unnið alla fimm leiki sína .

4. flokkur: A-liðið með glæsilegan sigur

A-lið 4. flokks karla í handbolta lék í dag leik við Fram en Framarar höfðu fyrir leikinn tapað fæstum stigum liða í deildinni og ljóst að um hörkuleik var að ræða. KA-menn sýndu framúrskarandi hugarfar í þessum leik og gáfu allt sem þeir áttu. Þeir bættu vörnina sína mikið frá undanförnum leikjum og unnu sannfærandi sigur 24-21 eftir að hafa leitt 12-7 í hálfleik.