Fréttir

4. flokkur: Einn leikur hjá strákunum á sunnudag

Á morgun sunnudag leikur eitt liða 4. flokks karla, B-2, við Víking. Leikurinn fer fram klukkan 10:00 í KA-Heimilinu og er fólk eindregið hvatt til að mæta á leikinn. Á miðvikudaginn næsta verður svo stórleikur í 4. flokk þegar Þór kemur í heimsókn og spilar við A-lið KA. Sá leikur er klukkan 17:15 á miðvikudeginum.

6. flokkur stráka: Breyting á æfingatímum um helgina

Athugið að laugardagsæfingin fellur niður um þessa helgi en í staðinn verður æfing á sunnudaginn klukkan 12:30. Sú æfing verður 1,5 klukkustund þannig að við æfum frá klukkan 12:30 - 14:00. Kveðja Jóhannes Bjarnason

4. flokkur kvenna: Skref í rétta átt - Brúsarnir fengu að fljúga

Stelpurnar í 4. flokk kvenna fóru suður um liðna helgi. Fyrir lágu fjórir leikir, tveir hjá A liði og tveir hjá B liði. A-liðið spilaði gegn Víking á laugardegi og Stjörnunni á sunnudegi. Helsti höfuðverkur þessara stúlkna hingað til er hversu litla trú þær hafa á sjálfum sér. Við minnsta mótlæti hafa þær brotnað og kastað frá sér sigrum í leikjum sem þær ættu að vinna.

4. flokkur karla: 5 sigrar í 7 leikjum.

Öll þrjú lið 4. flokks fóru suður um helgina og léku allt í allt sjö leiki. Liðunum gekk misjafnlega en það voru bæði B-liðin sem báru af um helgina en leikmenn þeirra liða mættu virkilega klárir í þessa helgi, lögðu sig alla fram og höfðu gaman af því að spila. 5 leikir unnust af 7 að þessu sinni.

Myndir af helgaræfintýri 6. flokks stráka

Strákarnir eru núna á helgaræfingu með kvöldvöku og gistingu í KA heimilinu. Okkur hafa nú borist myndir frá vídeófundi frá því í kvöld. Smelltu hér til að skoða myndirnar

Fjör hjá handboltastrákunum í 6. flokki um helgina

Annað kvöld, föstudagskvöld verður mikið um að vera hjá strákunum í 6. flokki handboltans, en á dagskrá verður handbolti, matur,  kvöldvaka, gisting, kennsla og meiri handbolti. Fjörið stendur frá klukkan 20:15 á föstudag og fram til klukkan 11:30 á laugardag.  Strákarnir eiga að mæta klukkan 20:15 í KA Heimilinu og þurfa að hafa með sér 500 krónur upp í kostnað.  Dagskráin fer hér á eftir:

Meistarflokkur KA/Þór með fullt hús í 2. deild

Meistaraflokkur kvenna fór suður um helgina til að spila sína fyrstu leiki í 2. deild. Það var ljóst að einhver forföll væru í hópnum. Nokkrar af þeim eldri komust ekki með suður þessa helgina, meðal annars var Lilja Þórisdóttir í rannsóknarferð í Svíþjóð.  Það er skemmst frá því að segja að stelpurnar unnu báða leikina og eru því með fullt hús stiga í deildinni auk þess að vera komnar í 8 liða úrslit bikarkepninnar. Hér fylgir pistill um leiki helgarinnar.

Öll lið 4. flokks karla unnu

Öll þrjú lið 4. flokks karla í handbolta léku um helgina í KA-Heimilinu en þetta voru fyrstu leikir KA í vetur á Íslandsmótinu. Segja má að veturinn fari mjög vel af stað hjá strákunum en öll liðin unnu sína leiki eftir mikla spennu og hörku leiki. 34 strákar spiluðu fyrir KA liðin þrjú um helgina og vantaði samt tvo við þann hóp sem gátu ekki verið með.

Kvennalið KA/Þórs leikur tvo leiki í 2. deild um helgina

Kvennalið KA/Þórs heldur suður yfir heiðar um næstu helgi og leikur tvo leiki í 2. deild Íslandsmótsins. Fyrri leikurinn er í Víkinni þar sem leikið verður gegn heimamönnum Víkingum á laugardaginn kl. 17:00. Á sunnudaginn verður leikið við Fjölni og hefst sá leikur kl. 11:00 í íþróttamiðstöðinni Grafarvogi. Allir stuðningsmenn liðsins á höfuðborgarsvæðinu eru hvattir til að mæta og styðja stelpurnar.

Myndasyrpa frá æfingaleik kvennaliðs KA/Þórs gegn Völsungi

Um síðustu helgi átti að fara fram fyrsti leikur kvennaliðs KA/Þórs í 2. deild Íslandsmótsins í handbolta. Eins og við höfum greint frá sáu andstæðingarnir FH sér ekki fært að koma þannig að í staðinn var slegið upp æfingaleik gegn Völsungi sem einnig sendir lið í sömu deild. Þórir Tryggvason var mættur með myndavélina og hér er hægt að skoða myndasyrpu frá æfingaleiknum.