Fréttir

Leikir hjá 3. flokki karla um helgina (breyttir leiktímar)

KA2 spilar á móti HK á laugardag klukkan 15:30 en fljótlega á eftir eða klukkan 17:30 spilar KA1 á móti Stjörnunni í miklum toppbaráttu leik. Strákarnir hafa verið að sýna fína leiki og hvetjum við því alla til að koma og hvetja strákana.

4. flokkur kvenna stóð í ströngu um liðna helgi.

Stelpurnar í 4. flokki kvenna fóru suður og spiluðu þrjá leiki um síðustu helgi. 
Mótið hefur spilast heldur illa fyrir stelpurnar en fyrir helgina höfðu þær spilað fimm leiki, þrjú töp og tveir sigrar. Það hefur einkennt stelpurnar að tapa heldur stórt þar sem þær hafa átt í erfiðleikum með að halda haus þegar á móti blæs.

4. flokkur karla spilaði um helgina - myndir

Strákarnir í 4. flokki stóðu í ströngu á laugardaginn og léku alls fjóra leiki, en KA er með þrjú lið í Íslandsmóti 4. flokks. A liðið spilaði við FH í Höllinni en FH liðið er efst í 1. deildinni. KA strákarnir lentu undir í fyrri hálfleik en FH leiddi með fimm mörkum í hálfleik, 12-17. KA strákarnir bitu frá sér í seinni hálfleik en svo fór að lokum að FH sigraði með eins marks mun, 27-28. KA liðið situr í 5. sæti fyrstu deildar eftir leikinn.

Leikir hjá 3. fl. karla um helgina

Á laugardaginn kl: 19.00 spila KA1 - FH1 í KA heimilinu. Þessi lið eru á sömu slóðum í deildinni og því ætti að verða hörkuleikur þar. Á sunnudag spila síðan KA2 - FH2 kl:11.00 í KA heimilinu. KA liðið hefur átt erfitt uppdráttar en voru farnir að bæta sig verulega í síðustu leikjum fyrir jól, vonumst við til að sú framþróun haldi áfram. Ég vil því hvetja alla til að koma og hvetja þessa stráka. Jóhann Gunnar Jóhannsson

Jólakveðja

Jólaæfing 7. og 8. flokks - myndir

Það var mikið fjör og gaman á jólaæfingu 7. og 8. flokks á laugardaginn, farið var í margskonar leiki og ekki minnkaði stemmingin þegar tveir jólasveinar mættu á svæðið. Jólasveinarnir komu ekki bara klyfjaðir af gjöfum heldur reyndust þeir liðtækir handboltamenn og sýndu meðal annars einstaka hæfileika sem markmenn, sérstaklega þegar þeir stóðu báðir í markinu og með aðstoðarmann með sér.

Stelpurnar í meistaraflokki fóru suður um helgina - ferðasagan öll

Stelpurnar í meistaraflokki kvenna fóru suður um helgina til að spila tvo leiki. Lagt var af stað snemma á laugardagsmorgni, þó öllu seinna heldur en áætlað var þar sem einn leikmaður var stöðvaður af lögreglunni á leið sinni í rútuna. Leikurinn gegn Fylki spilaðist nokkuð vel. Jafnt var í hálfleik og getumunur liðanna lítill og í raun hefðu KA/Þór stelpur átt að vera yfir í hálfleik. Seinni hálfleikur byrjaði ágætlega en það var eins og það vantaði ákveðna trú í stelpurnar til að setja í fluggírinn og klára þungt og pirrað Fylkisliðið. Stelpurnar fengu fjöldamörg tækifæri til þess að klára leikinn en heppnin virtist ekki vera með þeim þennan daginn og svo fór að Fylkisstelpur lönduðu tveggja marka sigri.

Tæpt tap KA/Þór gegn Fylki

Það var hörkuleikur í Fylkishöllinn í dag þegar KA/Þór stúlkur komu í heimsókn. Jafnt var í hálfleik 11-11 en svo fór að lokum að Fylkir fór með tveggja marka sigur 25:23. Arna Valgerður Erlingsdóttir var markahæst hjá KA/Þór, skoraði átta mörk og Martha Hermannsdóttir 7 mörk. 

Tveir leikir hjá meistaraflokki KA/Þór um helgina

Það verður annasöm helgi hjá stelpunum í KA/Þór en þær leika tvo leikir fyrir sunnan um helgina.  Á laugardag kl. 16:00 er leikur við Fylki og á sunnudag einnig kl. 16:00 er leikið við Hauka. Sendum stelpunum góðar kveðjur í slaginn.

Árleg jólaæfing 7. og 8. flokks drengja og stúlkna

Eins og undanfarin ár verður sérstök jólaæfing fyrir 7. og 8. flokk drengja og stúlkna. Æfingin verður laugardaginn 12. desember kl. 10:45 - 11:30. Að vanda verður farið í skemmtilega leiki og góðir gestir koma með glaðning. Foreldrar og systkini eru hvött til að mæta og fylgjast með.